Haustsópun í Hafnarfirði
Haustsópun í Hafnarfirði hefst á mánudaginn en þá er farið yfir allar götur bæjarins, þær sópaðar og reynt að ná sem stærstum hluta af laufmassanum sem hefur fallið síðustu daga og vikur. Haustsópuninni er skipt í fjórtán hverfi og er eitt hverfi sópað á degi hverjum.
Haustið er búið að vera fallegt hér í Hafnarfirðinum og litirnir í náttúrunni kostulegir. Nú eru lauf farin að falla af trjám og haustsópun því við það að hefjast hjá bænum. Í haustsópun er farið yfir allar götur bæjarins, þær sópaðar og reynt að ná sem stærstum hluta af laufmassanum sem hefur fallið síðustu daga og vikur.
Haustsópun í Hafnarfirði er skipt í fjórtán hverfi og er eitt hverfi sópað á degi hverjum. Fyrsta hverfið verður tekið mánudaginn 24.okt. Á myndinni hér fyrir neðan má sjá hverfaskiptingu og vinnuröðun.
