Útboð – nýr íþróttasalur
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í byggingu á nýjum íþróttasal við Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Verkið nær til að byggingar íþróttasalar og fullnaðarfrágangs að utan sem innan ásamt frágangi lóðar. Stærð íþróttasalar með áhaldageymslum og tæknirýmum eru 2.411 m2
Hafnarfjarðarbær óskar
eftir tilboðum í byggingu á nýjum íþróttasal
við Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Verkið nær til að byggingar íþróttasalar og
fullnaðarfrágangs að utan sem innan ásamt frágangi lóðar. Stærð íþróttasalar með áhaldageymslum og tæknirýmum eru 2.411
m2 .
Helstu
magntölur eru:
- Mót 3.440
m2 - Steypa 778 m3
- Steypustyrktarstál 63.000 kg
- Stálvirki
í þaki 70.800 kg - Álklæðning 897 m2
- Þakeiningar 1.650 m2
Byggingu
íþróttasalar skal vera lokið og hann tekinn í notkun 2.febrúar 2018 en endanlegum frágangi á lóð skal vera lokið eigi
síðar en 1.júlí 2018. Útboðsgögn verða eingöngu afhent rafrænt á verkefnavef
verksins. Lykilorð að útboðsgögnum veitir Samúel Guðmundsson, sími: 695
3264 , netfang: samuel@thg.is
Tilboð verða opnuð á skrifstofu
Hauka, Íþróttamiðstöðinni Ásvöllum 1,
221 Hafnarfirði þriðjudaginn 6. desember
n.k. kl. 12 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Ljósmynd: www.dv.is