Útboð – sláttur og hreinsun
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í slátt á opnum svæðum og hreinsun gróðurbeða meðfram stofnleiðum í Hafnarfirði. Tilboð verða opnuð þann. 18. janúar.
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í eftirfarandi verkefni.
Sláttur á opnum svæðum
Verkið felur í sér slátt á opnum svæðum bæjarins samkvæmt nánari tilvísun verkkaupa, alls 69 hektarar (692.000 m2). Um er að ræða manir með mismiklum halla og slétt svæði. Tilboð verða opnuð hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu þann 18. janúar 2017 kl. 10.
Hreinsun gróðurbeða
Verkið felur í sér hreinsun gróðurbeða meðfram stofnleiðum í Hafnarfirði. Beðin eru samtals um 4.200 m2. Um er að ræða beð að mismunandi lögun og mismiklum gróðri. Tilboð verða opnuð hjá umhverfis- og skipulags- þjónustu þann 18. janúar 2017 kl 10:15
ATHUGIÐ! Kynningarfundur vegna útboða verður haldinn á Norðurhellu 2 þann 11. janúar kl. 13:15.
Útboðsgögn eru til sölu hjá umhverfis- og skipulags- þjónustu Hafnarfjarðar, Norðurhellu 2. Verð kr. 2.000,-