Teymisstjóri mannauðsmála

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 26.05.2026

Umsóknarfrestur til: 04.06.2026

Tengiliður: Lind Einarsdóttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir öflugum og metnaðarfullum teymisstjóra mannauðsmála til starfa í fullt starf.  Starfið heyrir undir mannauðsstjóra og starfinu fylgir ekki mannaforráð. Teymisstjóri hefur verkefnalega umsjón.  

Um er að ræða fjölbreytt starf með krefjandi verkefnum, þar sem reynir á frumkvæði, sjálfstæði og skipulag í vinnubrögðum.

Teymisstjóri mannauðsmála er hluti af mannauðsteymi sem veitir m.a. ráðgjöf og fræðslu til stjórnenda og starfsfólks Hafnarfjarðarbæjar. Mannauðsteymið er metnaðarfullt þegar kemur að því að sækja fram, innleiða nýjungar, einfalda ferla og gera þjónustu til stjórnenda og starfsmanna skilvirkari og betri. Við getum lofað áhugaverðu og metnaðarfullu starfsumhverfi með fullt af spennandi verkefnum og tækifærum til nýsköpunar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í skipulagi, þróunar- og stefnumótunarvinnu mannauðsmála
  • Stuðningur, ráðgjöf og fræðsla til stjórnenda varðandi mannauðstengd mál
  • Túlkun, ráðgjöf og framkvæmd kjarasamninga og laga m.a. á sviði vinnuréttar
  • Sinnir fræðslu til stjórnenda um mannauðsmál og stuðlar að markvissri fræðslu sem styður við starfsemi stofnana bæjarins
  • Ýmis upplýsingagjöf og úrvinnsla tengd kjara-og réttindamálum starfsmanna  
  • Hefur eftirlit með framkvæmd mannauðsmála og setur fram tillögur um úrbætur þar sem við á
  • Verkefnastjórnun og þátttaka í starfshópum á sviði mannauðsmála bæði innan og utan bæjarins
  • Hefur frumkvæði að framþróun og nýsköpun í mannauðsmálum
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun (B.A./B.S) sem nýtist í starfi
  • Framhaldsháskólamenntun (M.Sc. /M.A) sem nýtist í starfi t.d. á sviði mannauðsstjórnunar
  • Góð reynsla af mannauðsmálum og ráðgjöf til stjórnenda, að lágmarki 5 ár
  • Reynsla af túlkun kjarasamninga
  • Reynsla af ráðningum hjá hinu opinbera
  • Þekking og reynsla af úrlausn ágreiningsmála 
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfileikar
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Mannauðs- og launadeild hefur faglega forystu og yfirumsjón með mannauðs– og launamálum Hafnarfjarðarbæjar.  Ábyrgð á  stefnumótun, eftirliti og eftirfylgd með framkvæmd mannauðsmála, kjaramála, jafnréttismála og túlkun kjarasamninga og vinnurétti 

Launkjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.

Nánari upplýsingar um starfið og launakjör veitir Lind Einarsdóttir, mannauðsstjóri, linde@hafnarfjordur.is

Umsóknarfrestur er til og með 4. júni 2026.

Greinargóð ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf