Tengiliður farsældar barna – Hraunvallaskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 28.05.2026

Umsóknarfrestur til: 11.06.2026

Tengiliður: Lars Jóhann Imsland

Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða tengilið farsældar barna fyrir skólaárið 2026-2027 

Ráðið verður í starfið frá og með 1. ágúst og er starfið tímabundið í eitt ár. Starfshlutfall ráðningar er 50% en möguleiki er á aukningu í starfshlutfalli í öðrum störfum innan skólans s.s. kennslu.

Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum.  Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.

Markmið með starfi tengiliðar farsældar barna í leik- og grunnskólum er að stuðla að því að nemendur og foreldrar sem á þurfa að halda hafi greiðan aðgang að samþættri þjónustu við hæfi. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita foreldrum og nemendum sem á þurfa að halda upplýsingar um samþætta farsældarþjónustu 
  • Skipuleggja, samhæfa og fylgja eftir þjónustu á fyrsta stigi samþættingar í kjölfar frummats 
  • Meta  og/eða eiga samráð um mat á þörf fyrir annars eða þriðja stigs þjónustu og þar með skipan málstjóra 
  • Stuðla að þátttöku foreldra og nemenda í ákvarðanatöku og úrræðum 
  • Samvinna og fræðsla til stjórnenda, kennara og annars starfsfólks skóla 
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf kennara/löggild starfsréttindi heilbrigðisstéttar eða sambærileg menntun sem tengist starfi með börnum og fjölskyldum 
  • Nám á framhaldsstigi í farsæld barna er kostur 
  • Haldgóð reynsla af starfi með börnum og eftir atvikum fjölskyldum 
  • Þekking á verkefnastjórnun er kostur 
  • Þekking á snemmtækum og hagnýtum verkfærum til stuðnings nemendum 
  • Leikni í ráðgjöf í þverfaglegu samstarfi 
  • Samskiptahæfni og jákvætt viðmót 
  • Góð íslensku- og enskukunnátta eða C1, samkvæmt evrópska tungumálaramma

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is  og Aðalbjörg Sigurðardóttir, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is, í síma 590 2800.

Umsóknarfrestur er til og með 11. júní 2026.

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn ásamt menntunargögnum.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf