Tómstundaleiðbeinandi – Aldan – Öldutúnsskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 20.06.2026

Umsóknarfrestur til: 04.07.2026

Tengiliður: Margrét Sverrisdóttir

Öldutúnsskóli auglýsir eftir tómstundaleiðbeinanda í félagsmiðstöðina Ölduna

Langar þig að vinna með börnum og unglingum í skapandi og skemmtilegu umhverfi? Við í Öldutúnsskóla leitum að drífandi, jákvæðum og kraftmiklum tómstundaleiðbeinanda til starfa í félagsmiðstöðinni Öldunni fyrir næsta skólaár. 

Í Öldutúnsskóla eru um 580 nemendur í 1.–10. bekk og leggjum við áherslu á virðingu, virkni og vellíðan í öllu skólastarfi.

Félagsmiðstöðin Aldan býður nemendum í 5.–10. bekk upp á fjölbreytt og metnaðarfullt tómstundastarf eftir skóla. Starfið byggir á unglingalýðræði, virkri þátttöku og öflugu forvarnastarfi. Þar fá unglingar tækifæri til að njóta sín í opnu félagsstarfi, skipulagðri dagskrá, hópastarfi og fjölbreyttum viðburðum sem eru unnir í samstarfi starfsfólks og ungmenna.

Starfið hentar sérstaklega vel fyrir skólafólk eða einstaklinga sem leita að spennandi aukastarfi.

Helstu verkefni

  • Taka þátt í að skipuleggja og þróa fjölbreytta dagskrá í samstarfi við stjórnendur, samstarfsfólk og ungmenni.
  • Eiga í virkum samskiptum við börn og unglinga og efla þátttöku þeirra.
  • Skapa jákvætt, öruggt og uppbyggilegt félagslegt umhverfi sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum.
  • Styðja við frumkvæði, öryggi og vellíðan barna og unglinga.
  • Sinna öðrum verkefnum samkvæmt starfslýsingu tómstundaleiðbeinanda.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Starfsþjálfun, námskeið og/eða starfsreynsla sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
  • Frumkvæði, jákvætt viðmót og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Góð skipulagshæfni og stundvísi.
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi með börnum og unglingum.
  • Almenn tölvukunnátta.
  • Góð íslenskukunnátta. Gerð er krafa um hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans.
  • Hreint sakavottorð er skilyrði.

Ráðið er í stöðuna frá 24.ágúst 2026. 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veita:

Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri
Sími: 664 5894
Netfang: margret@oldutunsskoli.is

Kristján Hans Óskarsson, deildarstjóri
Sími: 664 5712
Netfang: kristjan.oskarsson@oldutunsskoli.is

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er til og með 4. júlí 2026.

Ferilskrá skal fylgja umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Hafnarfjarðar.

Hafnarfjarðarbær vinnur markvisst að jafnrétti og fjölbreytileika á vinnustöðum sínum og hvetur fólk af öllum kynjum og með fjölbreyttan bakgrunn til að sækja um starfið.

Önnur störf