Bilun í dælu- og hreinsistöð í Hraunavík

Fréttir

Bilun hefur kom upp í frárennslis dælum í dælu- og hreinsistöð Hafnarfjarðarbæjar í Hraunavík í dag.  Viðgerð mun taka sólarhring eða tvo í mesta lagi að mati þeirra sem eru á vettvangi. Heilbrigðiseftirliti bæjarins var gert viðvart áðan um bilunina um leið og hennar var vart og ljóst var til hvaða aðgerða þyrfti að grípa.

Bilun hefur kom upp í frárennslis
dælum í dælu- og hreinsistöð Hafnarfjarðarbæjar í Hraunavík í dag. Eftir athuga
var ljóst að ekki var óhætt að keyra hreinsibúnað stöðvarinnar á fullum
afkostum meðan unnið er að viðgerðum. Hluti skólps frá stöðinni mun frá og með
þessum klukkutíma renna fram hjá kerfinu og beint út í sjó í gegnum
frárennslisrör sem nær tvo kílómetra út í sjó. Viðgerð mun taka sólarhring eða
tvo í mesta lagi að mati þeirra sem eru á vettvangi. Heilbrigðiseftirliti
bæjarins var gert viðvart áðan um bilunina um leið og hennar var vart og ljóst
var til hvaða aðgerða þyrfti að grípa.

Viðbragðs
aðilar eru við störf í stöðinni og munu ekki hætta fyrr en viðgerð er lokið. Bæjarbúar
gætu orðið varir við það að fuglar safnist saman við útrennslið á meðan að
ástandið er svona en engin sjóböð eru stunduð á þessum svæðum þannig að
bæjarbúar verði því ekki varir við bilunina að öðru leyti.

Meira um
stöðina í Hraunavík: Bygging stöðvarinnar lauk árið 2007 og
var hún þá tekin í gagnið. Í hreinsistöðinni er allt skólp frá Hafnarfjarðarbæ
hreinsað með 1. þreps hreinsun. Í því felst að öll föst efni (hrat) stærri en 3
mm í þvermál eru síuð frá skólpinu í tveimur grófsíum (þrepasíum). Að auki eru
fita og sandur skilin frá skólpinu. Öllu hrati og sandi er safnað í sérstakan
gám, sem tæmdur er reglulega á sérstökum urðunarstað. Fitunni er safnað í
sérstakt hólf í stöðinni og fitunni síðan dælt þaðan í sérstaka tankbíla, er
losa síðan fituna á sérstökum urðunarstað.

Eftir þessa hreinsun er skólpinu síðan dælt út í sjó um 2 km
langa útræsislögn niður á um 23 m dýpi. Þar tekur sjórinn við og eyðir eða
þynnir skólpvatnið út nokkuð fljótt, þannig að styrkur mengandi efna frá
útræsinu eru vel innan umhverfismarka við strandlengjuna, skv. kröfum
reglugerða.

Ábendingagátt