Grunnskólahátíðin í Hafnarfirði

Fréttir

Á morgun, miðvikudaginn 7. febrúar fer fram Grunnskólahátíðin í Hafnarfirði.   Félagsmiðstöðvarnar og skólarnir hafa staðið að þessu verkefni í áraraðir og það verið unglingum og verkefnum þeirra til sóma.

Á
morgun, miðvikudaginn 7. febrúar fer fram Grunnskólahátíðin í
Hafnarfirði.   Félagsmiðstöðvarnar og skólarnir hafa staðið að þessu
verkefni í áraraðir og það verið unglingum og verkefnum þeirra til sóma.

Um
daginn verða leiksýningar  í Gaflaraleikhúsinu kl. 10:00, 12:00 og 14:00.
Þar sýna nemendur úr skólum bæjarins afrakstur allskonar listtengdrar vinnu.

kl.10 – Hraunvallaskóli og Áslandsskóli

kl.12 – Víðistaðaskóli og Lækjarskóli

kl.14 – Setbergsskóli, Öldutúnsskóli og Hvaleyrarskóli

Um
kvöldið mun dansleikur hefjast kl 19:00 í Íþróttahúsinu Strandgötu og ljúka kl.
22:30.  Á ballinu koma fram DJ Ralfs, Wizardmanscligue, JóiPé og Króli,
Sprite Zero Klan, Rjóminn, Ragga Hólm og sigurvegarar úr söngkeppni
Hafnarfjarðar þær Rakel Sara Sigþórsdóttir úr Hraunvallaskóla og Unnur Elín
Sigursteinsdóttir úr Öldutúnsskóla.

Allir
verða keyrðir heim að dansleik loknum. 

Ábendingagátt