Tillaga að aðal- og deiliskipulagsbreytingu við Suðurgötu 40-44
Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 30.8.2017 var samþykkt að auglýsa tillögu að breyttri landnotkun í aðalskipulagi Hafnarfjarðar í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt samþykkti bæjarstjórn tillögu að breyttu deiliskipulag fyrir Suðurgötu 40-44 og að auglýsa hana í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillögurnar verða auglýstar samhliða líkt og 2.mgr. 41. gr. skipulagslaga 123/2010 veita heimild til.

Breytingartillaga aðalskipulags Hafnarfjarðar fyrir umræddar lóðir felst í að: breyta landnotkunarskilgreiningunni er nær til lóðanna við Suðurgötu 40-44 úr samfélagsþjónustu í íbúðarbyggð.Breytingartillaga deiliskipulagsins felst í að: lóðin við Suðurgötu 40 verður aftur skilgreind sem íbúðarhúsalóð í stað bílastæðalóðar. Húsið við Suðurgötu 44 fær nýtt hlutverk ásamt leikfimishúsi sem á að víkja sk. gildandi skipulagi. Því verði breytt í íbúðarhús með að hámarki 12 íbúðum. Bílastæði verða leyst innan lóðar. Til verður ný lóð innan lóðar Suðurgötu 44 er fær númerið 46.
Tillögurnar ásamt fylgigögnum verða til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu að Norðurhellu 2, frá 16.03.2018–27.04.2018.
- Suðurgata – Hamarsbraut – breytt landnotkun – fjölgun íbúða – Lýsing vegna breytinga á aðalskipulagi 12. maí 2017
- Breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 – Svæði samfélagsþjónustu verður að hluta til íbúðarsvæði
- Suðurgata – Hamarsbraut Deiliskipulagsbreyting Suðurgötu 40-44
- Tillaga að breyttu deiliskipulagi við Suðurgötu 40-44 – Kynning VA-arkitekta 24. janúar 2018
- Suðurgata – áhrif uppbyggingar á umferð – Kynning Mannvit 24. janúar 2018
- Greining á umferð vegna breytinga á skipulagi við Suðurgötu – Mannvit 18. janúar 2018
- Umsögn Fræðslu- og frístundaþjónustu vegna aðalskipulagsbreytinga við Suðurgötu – Hamarsbraut
- Svar Skipulagsstofnunar vegna aðalskipulagsbreytinga við Suðurgötu – Hamarsbraut
- Umsögn Minjastofnunar vegna aðalskipulagsbreytinga við Suðurgötu
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu. Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til Umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 27. apríl 2018. Þeir sem eigi gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.
Umhverfis- og skipulagsþjónusta Hafnarfjarðar. Skipulagsfulltrúi.