Nýjar sýningar í Hafnarborg
Föstudaginn 30. ágúst kl. 20 verða opnaðar tvær nýjar sýningar í Hafnarborg, annars vegar Allt á sama tíma, haustsýning Hafnarborgar, í sýningarstjórn Andreu Arnarsdóttur og Starkaðar Sigurðarsonar, og hins vegar Fangelsi, ný innsetning myndlistarmannanna Olgu Bergmann og Önnu Hallin.
Föstudaginn
30. ágúst kl. 20 verða opnaðar tvær nýjar sýningar í
Hafnarborg, annars vegar Allt á sama
tíma, haustsýning Hafnarborgar, í sýningarstjórn Andreu Arnarsdóttur og Starkaðar
Sigurðarsonar, og hins vegar Fangelsi,
ný innsetning myndlistarmannanna Olgu
Bergmann og Önnu Hallin.
Hugmyndin með haustsýningu Hafnarborgar í ár, Allt á sama tíma, er að kanna hvernig
listamenn takast á við það frelsi sem finnst í myndlist í dag. Hvernig hægt er
að búa til merkingu úr list sem getur verið hvað sem er, málverk,
barnaleikfang, pappamassi, hreyfing, hugmynd, ópera, gifs. Sýnd verða verk í
ólíkum miðlum, frá olíumálverki til gjörninga, og gerð tilraun til að sameina
þær dreifðu hugmyndir sem finnast í myndlist samtímans.
Listamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Auður Lóa Guðnadóttir, Baldvin Einarsson, Bára Bjarnadóttir, Rúnar Örn
Marinósson, Sigrún Gyða Sveinsdóttir,
Steingrímur Gauti Ingólfsson og Valgerður Sigurðardóttir. Allt á sama tíma er níunda sýningin í
haustsýningaröð Hafnarborgar, þar sem hugmynd sýningarstjóra er valin úr
innsendum tillögum.
Innsetning Olgu Bergmann og Önnu Hallin, Fangelsi, byggist á reynslu þeirra við
gerð listaverka fyrir fangelsið á Hólmsheiði. Þær velta fyrir sér hugmyndum um
eftirlit og frelsissviptingu með vísunum í „mise en abyme“, eða fyrirbærið
„mynd innan í mynd“, sem eins konar táknmynd um lokað samfélag innan
samfélagsins. Þar standa íbúarnir utan hins alltumlykjandi eftirlitssamfélags
nútímans, sem flestir taka þátt í af meira eða minna fúsum og frjálsum vilja,
ólíkt samfélagi fangelsisins og hins stranga innra eftirlits sem þar ríkir í
lokuðu kerfi.
Sjá
nánar um sýningarnar hér og hér
Frekari upplýsingar veita:
- Ágústa Kristófersdóttir, forstöðumaður,
s. 664 5791 - Starkaður Sigurðarson, sýningarstjóri,
s. 772 2026 - Olga Bergmann, myndlistarmaður, s. 661
7871