Námsaðstoð á Bókasafni Hafnarfjarðar
Námsaðstoð Rauða krossins á Bókasafni Hafnarfjarðar er aftur komin á fullt eftir sumarfrí. Aðstoðin er fyrir öll börn í 1.-10. bekk og fer fram alla þriðjudaga frá kl. 15-17.
Námsaðstoð Rauða krossins á Bókasafni Hafnarfjarðar er aftur komin á fullt eftir sumarfrí. Aðstoðin er fyrir öll börn í 1.-10. bekk og fer fram alla þriðjudaga frá kl. 15-17.
Markmiðið að styrkja börn í námi
Verkefnið Námsaðstoð Rauða krossins er unnið í samvinnu Bókasafns Hafnarfjarðar og Rauða krossins í Hafnarfirði og Garðabæ. Heimavinnuaðstoðin er fyrir öll börn í 1. til 10. bekk. Markmið verkefnisins er styrkja börnin í námi og kynna fyrir þeim þjónustu bókasafnsins í tengslum við nám og áhugamál.
Heimavinnuaðstoðin verður á þriðjudögum milli kl. 15:00 og 17:00 í fjölnotasal Bókasafns Hafnarfjarðar (gengið niður stiga hjá barna- og unglingadeild). Sjálfboðaliðar Rauða krossins taka á móti nemendum og aðstoða við heimanámið. Sjálfboðaliðarnir eru flestir grunn- og/eða framhaldsskólakennarar með mismunandi sérhæfingu og reynslu.
Við hvetjum börn, foreldra og forráðamenn til að nýta sér þjónustuna!


