„Nú er það afstrakt“ — Ný sýning á verkum Sveins
Tólfta sýningin á verkum Sveins Björnssonar verður opnuð í safni hans í Krýsuvík á sunnudag. Sveinn lést árið 1997 og segir sonur hans listasafnið sem hann skildi eftir sig það þriðja stærsta á landsvísu. 89 myndir eru sýndar í tilefni af 100 ára afmælisári listamannsins.
Tólfta sýningin á verkum Sveins í Krýsuvík
„Heilmikið af þessum myndum sem við setjum upp núna hafa ekki verið sýndar,“ segir Erlendur Sveinsson kvikmyndagerðarmaður um tólftu sýningu á verkum föður hans Sveins Björnssonar (1925-1997).
Sýningin „Nú er það afstrakt“ verður opnuð í Sveinssafni í kjölfar vormessunnar hefðbundnu í Krýsuvíkurkirkju sunnudaginn 14. júní kl. 14:00. Um kl. 15:00, verður svo messukaffi í Sveinshúsi í Krýsuvík, gegnt súrheysturnum gamla fjóssins.
Stórar, litríkar myndir
„Það er orðin hefð að opna sýningu í Sveinssafni annað hvert ár, á sama tíma og við erum með vormessuna. Það er yfirleitt fjölmennt og messugestir fá sýninguna í ofanálag,“ segir Erlendur. Gott sé að skynja nándina sem myndist við fólkið og verkið. Erlendur hannar sýninguna, texta og skrár.
„Nú veigra ég mér ekki við að taka inn stórar myndir. Þetta er litadýrð, lokaskeið föður míns þegar hann var kominn yfir í litinn,“ segir hann.
Á 100 ára afmælisárinu
Sýningin er sett upp í tilefni af 100 ára afmælisári listamannsins sem var í fyrra (2025). Hún samanstendur af 89 verkum eftir Svein og 5 ljósmyndum sem tengjast efni sýningarinnar. Þá hafa verið útbúin nokkur sýningarspjöld af þessu tilefni. Menningarmálanefnd Hafnarfjarðarbæjar styrkti sýninguna.
„Hann skilur eftir sig þvílíkan arf. Það er ekkert fyrir þrjár litlar fjölskyldur að halda utan um það. Í verkum talið er þetta þriðja stærsta listasafn á Íslandi,“ segir Erlendur um föður sinn. „Í þessu safni er aragrúi af myndum sem aldrei hafa verið sýndar.“ Faðir hans hafi verið stór listamaður.
Sýningin verður opin í sumar annan sunnudag í mánuði. Boðið er upp á leiðsögn og kaffiveitingar á opnunardögum. Einnig er tekið á móti hópum á öðrum tímum sem aðilar sammælast um. Húsið allt er til sýnis. Þar eru einnig varðveitt húsgögn úr fórum Júlíönu Sveinsdóttur frænku þeirra og einnar fyrstu íslensku myndlistarkonunnar. Erlendur segir að fullyrða megi að vinnustofa Sveins er eina varðveitta vinnustofa gengins listamanns á Íslandi.
Gerði kvikmynd um pabba sinn
Erlendur lauk samhliða undirbúningi og uppsetningu sýningarinnar stafvæðingu kvikmyndar sinnar um föður sinn sem kallast „Málarann og sálminn hans um litinn“ og er frá árinu 2001. Kvikmyndin fjallar um sama efni og sýningin „Nú er það afstrakt“, eða yfirganginn frá fantasíumálverkinu yfir í afstraktið, eða dauða og upprisu í listinni. Hún verður sýnd í Bíóteki Kvikmyndasafnsins næsta vetur.
Erlendur segir að draumurinn væri að hafa safnið meira opið. „Já, og veiða ferðamenn í þetta net, ferðamenn sem streyma þarna í gegn. En við erum bráðum búin að halda safninu úti í þrjátíu ár og allt í sjálfboðavinnu.“
Erlendur segir frá því að pabbi hans hafi glímt við krabbamein síðustu fimm árin sín. „Hann gat ekki skilið við sig græjurnar síðustu þrjá mánuði lífs síns og er með stórar teiknibækur og merkir Lansanum. Hann er að þessu fram í andlátið. Í kvikmyndinni minni verður til altarismyndin hans sem við hengjum upp í messunni á sunnudaginn,“ segir Erlendur og lýsir lokum föður síns.
„Hann stendur að sýningu í Gerðarsafni í mánuðinum sem hann deyr. Hún er tekin niður daginn sem hann deyr. Við létum þessa altaristöflu fylgja honum þegar hann er jarðaður. Honum fannst vanta altaristöflu í kirkjuna.“ Þetta olíumálverk sé nátengt upprisunni, abstrakt upprisa, himnaríkishlið.
Krýsuvík uppsprettan
„Myndlistin hans er sprottin upp úr Krýsuvík. Vinnustofan hans var þarna frá árinu 1974. Elsta myndin hans, frá 1952-4, er einmitt af kirkjunni. Krýsuvík er uppsprettan og því gráupplagt að safnið nái að festa sig í sessi,“ segir Erlendur um arfleið föður síns. Draumurinn sé að hafa safnið meira opið.
„Já, og veiða ferðamenn í þetta net, ferðamenn sem streyma þarna í gegn. En við erum bráðum búin að halda safninu úti í þrjátíu ár og allt í sjálfboðavinnu.“
- Sjáðu sýningarskrána
Velkomin öll á opnunina og sýninguna.