Víkingahátíðin í 29. skipti – Hefst á morgun

Fréttir

Víkingar koma upp aðstöðu sinni á mettíma nú í dag fyrir 6 daga hátíðarhöld sem hefjast á Víðistaðatúni á morgun 16. júní. Fólk kemur frá ýmsum Evrópulöndum og tekur þátt í þessari alþjóðlegu Víkingahátíð hér í Hafnarfirði.

Víkingahátíðin í Hafnarfirði einstök

Bardagasýningar, handverk, víkingaskóli, bogfimi, fjölbreyttir sölubásar og veitingar bíða þeirra sem mæta á Víkingahátíðina í Hafnarfirði í ár. Hátíðin stendur í 6 daga og hefst á morgun, 16. júní. Þetta er í 29. skipti sem hátíðin er haldin.

Jökull Tandri Ámundason, jarl Rimmugýgjar sem er elsta víkingafélagið hér á landi og staðsett í Hafnarfirði, segir hratt unnið að undirbúningnum.

„220 til 250 víkingar mæta. Hér er hægt að koma og spreyta sig í víkingaleikum, bogfimi axarkasti og spjótkasti. Ungviðið getur gengið í víkingaskóla barnanna. Svo erum við með leikjasýningar, sögustund og hirðfífl sem leikur listir sínar.“

Jökull Tandri segir til að mynda frábært setjast í brekkuna neðan við Víðistaðakirkju og horfa á glímumót 20. júní. Írsk sjónvarpsstöð verði á svæðinu. Hann hvetur fólk til að koma. Opnunarathöfnin verði kl. 11.30 á morgun.

„Hátíðin fer hægt og rólega stækkandi. Við sjáum fleiri og fleiri sem koma aftur og aftur. Hér starfar sjálfboðaliðateymi frá Danmörku. Það er okkar stoð og stytta, já heimalingar hjá okkur,“ segir hann. Hátíðin sé alþjóðleg. Svíar,  Þjóðverjar, Bretar, Norðmaður og nokkrar hræður frá Akureyri.

„Hér er rosalega tilhlökkun og spenna,“ segir Jökull Tandri.

„Nokkrir Ameríkanar eru á leiðinni og hópur er að koma frá Ítalíu. Þau eru spennt og við líka fyrir komu þeirra, því þau sérhæfa sig í íslenska víkingatímanum.“

Já, Víkingahátíðin í Hafnarfirði er ævintýri líkust.

 

 

Ábendingagátt