Hreiðrið ungmennahús leitar að frístundaleiðbeinendum fyrir veturinn 2026-2027

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 09.07.2026

Umsóknarfrestur til: 03.08.2026

Tengiliður: svalae@hafnarfjordur.is




<br />


Hreiðrið er staðsett í Menntasetrinu við Lækinn og er opið öllum ungmennum á aldrinum 16-25 ára. Hreiðrið er vettvangur fyrir opið félagsstarf, skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með ungmennum. Starfið er unnið á grunni ungmennalýðræðis og í anda forvarna. 

Hreiðrið hefur afnot af aðstöðu Nýsköpunarsetursins sem er einnig í húsinu, þar á meðal tæknismiðju þar sem meðal annars má finna 3D prentara, laserskera og hitapressu, listarými og hljóðver. Kunnátta og reynsla á þessum sviðum eða af öðru skapandi starfi er því mikill kostur. 

Um er að ræða 25-40% starf. Hreiðrið er opið kl. 14-22 mánudaga til fimmtudaga og kl. 17-22 á föstudögum. Leitað er að starfsfólki á vaktir kl. 17-22 alla virka daga, fjöldi vakta eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Skipulagning og framkvæmd á fjölbreyttri dagskrá í samvinnu við ungmenni og annað starfsfólk

  • Uppbyggjandi samvera og samskipti við ungmenni

  • Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum

  • Stuðla að velferð og félagslegum þroska ungmennanna

  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu 

 

Menntun- og hæfniskröfur: 

  • Reynsla af starfi með ungmennum æskileg

  • Reynsla af hvers kyns skapandi starfi æskileg

  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • Frumkvæði, jákvæðni og samviskusemi

  • Áhugi á málefnum ungs fólks
  • Íslenskukunnátta A2 skv. samevrópska tungumálaramma

 

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð. 

Frekari upplýsingar um starfið veitir Svala Eyjólfsdóttir, svalae@hafnarfjordur.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar. 

Umsóknarfrestur er til og með 3. ágúst 2026 

Greinargóð ferilskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. 

 


Önnur störf