Fyrstu vikur bæjarstjóra í blómstrandi bæ
Þórður Þórarinsson tók við starfi bæjarstjóra Hafnarfjarðar í byrjun júní. Fyrstu vikurnar í starfi hafa einkennst af mikilli yfirferð, samtölum og heimsóknum þar sem hann hefur lagt áherslu á að setja sig hratt og vel inn í fjölbreytta þjónustu og málefni bæjarins. Þórður segir að Hafnarfjörður sé kraftmikið samfélag með sterka sjálfsmynd, fjölbreytta þjónustu og mikinn mannauð.
Þetta er Þórður, bæjarstjórinn okkar
Þórður Þórarinsson tók við starfi bæjarstjóra Hafnarfjarðar í byrjun júní. Fyrstu vikurnar í starfi hafa einkennst af mikilli yfirferð, samtölum og heimsóknum þar sem hann hefur lagt áherslu á að setja sig hratt og vel inn í fjölbreytta þjónustu og málefni bæjarins.
„Það eru forréttindi og heiður að fá að starfa fyrir Hafnarfjörð. Fyrstu vikurnar hafa verið bæði annasamar, lærdómsríkar og afar ánægjulegar. Ég hef lagt mig fram um að kynnast starfseminni, fólkinu sem heldur henni gangandi og þeim verkefnum sem framundan eru,“ segir Þórður. „Það skiptir máli að hlusta, læra hratt og vinna af heilindum fyrir bæjarbúa“. Þórður segir að Hafnarfjörður sé kraftmikið samfélag með sterka sjálfsmynd, fjölbreytta þjónustu og mikinn mannauð. „Það sem hefur staðið upp úr er hversu mikil þekking, reynsla og metnaður býr í starfsfólki bæjarins. Hér er verið að sinna mikilvægri þjónustu alla daga og það er skýrt að tækifærin liggja ekki síst í því að styðja vel við fólkið, einfalda ferla þar sem hægt er og tryggja að þjónustan við íbúa sé skýr, skilvirk og mannleg.“
Hverjar eru helstu áherslur þínar fyrstu vikurnar?
„Fyrsta verkefnið er að hlusta og læra. Ég tel mikilvægt að taka ákvarðanir á traustum grunni og skilja vel reksturinn, stjórnsýsluna og væntingar íbúa. Samhliða því þarf að horfa skýrt til framtíðar; hvernig við nýtum fjármuni bæjarins vel, hvernig við styrkjum þjónustuna og hvernig við tryggjum að Hafnarfjörður haldi áfram að vera eftirsóttur staður til að búa, starfa og ala upp börn.“
Hvernig horfir þú á rekstur bæjarins?
„Góður rekstur er forsenda þess að sveitarfélag geti veitt góða þjónustu. Þar skiptir máli að hafa skýra yfirsýn, vanda forgangsröðun og nýta fjármagn af ábyrgð. Ég legg áherslu á fagleg vinnubrögð, gagnsæi og samvinnu milli sviða, ráða og starfsfólks. Verkefnin eru mörg og mikilvægt að nálgast þau af yfirvegun, en líka með metnaði.“
Er munur á því að vera kjörinn fulltrúi og ráðinn bæjarstjóri?
„Já, hlutverkin eru ólík þótt þau vinni að sama markmiði. Kjörnir fulltrúar móta pólitíska stefnu og bera lýðræðislegt umboð íbúa. Hlutverk bæjarstjóra er að leiða stjórnsýsluna, fylgja eftir ákvörðunum bæjarstjórnar og tryggja að verkefnin komist í framkvæmd með faglegum og ábyrgum hætti. Ég lít á þetta sem mikilvægt samstarf þar sem skýr hlutverk, traust og gott upplýsingaflæði skipta miklu máli.“
Hvernig sérðu starfið fyrir þér?
„Ég sé starfið fyrst og fremst sem þjónustuhlutverk. Bæjarstjóri þarf að hafa yfirsýn, leiða fólk saman og skapa aðstæður þar sem góðar ákvarðanir verða að góðum verkum. Það krefst hlustunar, aga og úthalds. Ég vil vera sýnilegur, aðgengilegur og í góðu samtali við bæði starfsfólk, kjörna fulltrúa, íbúa og atvinnulíf.“
Hvað með ræturnar og tengslin við Hafnarfjörð?
„Ég kem inn í starfið með mikla virðingu fyrir Hafnarfirði og sögu Hafnarfjarðar, sérstöðu bæjarins og þeirri sterku bæjarvitund sem hér er. Það tekur tíma að kynnast samfélagi af alvöru, en ég hef þegar fundið fyrir mikilli hlýju og krafti. Ég hlakka til að kynnast Hafnfirðingum enn betur og taka þátt í því að byggja áfram upp góðan bæ.“
Þórður er stjórnmálafræðingur að mennt og býr yfir víðtækri reynslu af stjórnsýslu, stefnumótun og rekstri. Áður en hann tók við starfi bæjarstjóra gegndi hann embætti framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins á árunum 2014–2025. Þar áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins og hjá upplýsingadeild Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar. Þórður er fæddur árið 1967. Eiginkona hans er Marta María Ástbjörnsdóttir sálfræðingur og eiga þau þrjá syni.
Hvað gerir bæjarstjóri þegar hann er ekki í vinnunni?
„Þegar ég er ekki í vinnunni er ég helst með fjölskyldunni. Við Marta María eigum þrjá syni og þrjú barnabörn, þannig að það er alltaf nóg líf í kringum okkur. Ég hef gaman af útiveru, ferðalögum og því að fylgjast með samfélagsmálum, sem er reyndar stundum erfitt að kalla áhugamál þegar maður vinnur við þau alla daga,“ segir Þórður og brosir. „En fyrst og fremst reyni ég að nýta frítímann til að vera með fólkinu mínu og hlaða batteríin.“
Og að lokum — hvenær flytur þú í Fjörðinn fagra?
„Það er spurning sem mér hefur þegar verið stillt upp við. Ég er nú þegar farinn að eyða stórum hluta dagsins í Hafnarfirði og það er góður staður til að vera á. Hitt kemur í ljós, en ég skil vel að Hafnfirðingar vilji fá fólk alla leið í Fjörðinn.“