Skapandi sumarstörf – Hlæja og gráta / Á HLERI

Fréttir

Leikhópurinn Hlæja og gráta, sem samanstendur af Daða Víðissyni, Grími Smára Hallgrímssyni og Kötlu Yamagata, vinnur á vegum skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði í ár að útvarpsleikritinu Á HLERI. Markmið þess er að festa sumarið 2026 í Hafnarfirði í hlustanlegt form.

Á HLERI er útvarpsleikrit sem festir sumarið 2026 í Hafnarfirði í hlustanlegt form. Verkefni sumarsins snýst um að safna saman setningum og samtölum sem hópurinn heyrir í almenningi og gera úr þeim útvarpsleikrit sem fangar andrúmsloftið í Hafnarfirði þetta sumarið. Leikhópurinn Hlæja og gráta, samanstendur af Daða Víðissyni, Grími Smára Hallgrímssyni og Kötlu Yamagata.

Leikritið verður tímahylki fyrir sumarið og munu komandi kynslóðir geta nálgast það á Bókasafni Hafnarfjarðar og á vefsíðu hópsins. Við viljum vekja athygli á leikhúsinu, eða í þessu tilfelli útvarpsleikhúsinu, sem er allt í kring um okkur ef við ákveðum að taka eftir því.

Við hvetjum ykkur eindregið til að fylgjast með þessum skemmtilega og skapandi leikhóp HÉR á Instagram sem og mæta á lokahófið þann 6.ágúst næst komandi. Öll eru velkomin.

UM SKAPANDI SUMARSTÖRF 2026

Sumarið 2021 ákvað Hafnarfjarðarbær í samstarfi við Ungmennahús bæjarins, Hamarinn, að endurvekja verkefnið “Skapandi sumarstörf” sem hafði verið starfrækt sumarið 2017. Þá bauðst einstaklingum og hópum á aldrinum 18-25 ára að koma með hugmyndir að skapandi verkefnum í Hafnarfirði. Valdir hópar fengu tækifæri til að starfa við ýmis skapandi verkefni á ýmsum sviðum lista sem einnig myndu lífga upp á mannlífið í bænum, gleðja ferðamenn og íbúa með einum eða öðrum hætti. Starfsfólki Skapandi sumarstarfa, sem rekið er sem hluti af Vinnuskóla Hafnarfjarðar, er ætlað að glæða bæinn lífi, gera hann skemmtilegri, fallegri og fjölbreyttari með listrænum og skapandi uppákomum. Verkefnin eru fjölbreytt og höfða til mismunandi aldurshópa og áhugasviða.

Í ár eru níu fjölbreytt verkefni sem starfa á vegum skapandi sumarstarfa og verða þau kynnt vikulega út sumarið.

Ábendingagátt