Ríkuleg uppskera á hátíð Skapandi sumarstarfa

Fréttir

Uppskera skapandi sumarstarfa varð ljós í Nýsköpunarsetrinu við Lækinn síðdegis í gær. „Það er gefandi og frábært að sjá verkefnin lifna við; úr umsóknunum í raunveruleg listaverk,“ segir deildarstjóri Hreiðursins ungmennahúss.

Skapandi sumar hafnfirsks listafólks

Fjölmörg mættu á uppskeruhátíð Skapandi sumarstarfa sem fram fór í Nýsköpunarsetrinu við Lækinn í gær, fimmtudaginn 6. ágúst. Þar var afrakstur sumarsins dreginn saman og gestum gefið tækifæri til að kynnast fjölbreyttum verkefnum þessa unga og skapandi fólks. Og, já, þetta var upplifun. Fram steig listafólk sem á framtíðina fyrir sér.

„Það er gefandi og frábært að sjá verkefnin lifna við; úr umsóknunum í raunveruleg listaverk,“ segir Svala Eyjólfsdóttir, deildarstjóri Hreiðursins ungmennahúss. „Já, horfa á það sem kom inn sem hugmynd í vor í þrívídd á uppskeruhátíðinni í gær.“ Unga listafólkið hafi sýnt kraft og sköpunargleði.

„Ég er svo þakklát að hafa fengið að koma að þessu. Þau efldust í sumar og sýndu að þau eru rosalega fær í sínu sem sjálfstætt listafólk,“ segir Svala. „Það var mikil vinnusemi og þau eru afar hæfileikarík. Þau voru alveg með þetta.“

Fjölbreyttur listrænn hópur

Svala segir hópinn hafa myndað frábær tengsl. „Þau unnu hlið við hlið að verkefnum sínum og sögðu mér hvað það hefði verið frábært að vinna við hlið annarra í sinni sköpun.“

Svala segir störf sem þessi mikilvæg. „Já, fólki er gefið rými til að þróast sem listamenn, búa til list og finna sinn farveg. Þetta var fjölbreyttur hópur og allt í boði. Ég hvet ungt skapandi fólk að skoða þennan möguleika fyrir næsta ár.“

Skapandi sumarstörf eru hluti af Vinnuskóla Hafnarfjarðar og gefa ungu fólki á aldrinum 18–25 ára tækifæri til að þróa og framkvæma eigin hugmyndir á sviði lista og sköpunar. Í ár hafa níu fjölbreytt verkefni verið unnin á vegum Skapandi sumarstarfa.

Á uppskeruhátíðinni mátti sjá vel hversu ólíkar leiðir unga listafólkið hefur farið í sumar – allt frá myndlist og gagnvirkum vídeóverkum yfir í útvarpsleikhús, ritlist og ruslaplokkun. Þau lýstu verkefnum sínum að innlifun og ljóst að hvert og eitt þeirra var unnið af ást.

Afrakstur sumarsins

„Sumarið 26“ – útvarpsleikrit í þremur þáttum unnið úr hleruðum samtölum í Hafnarfirði og um Hafnarfjörð sumarið 2026. Höfundar: Katla Yamagata, Grímur Smári Hallgrímsson og Daði Viðarsson

Innblástur í raunheimum – stemmningsborð (mood board) fyrir stuttmyndina „Rætur“, unnið eftir reglum Dogma-hreyfingarinnar í kvikmyndagerð. Höfundur: Reynir Skarphéðinsson

Huldufólk í Hafnarfirði – myndskreytt samantekt á staðreyndum og túlkunum um álfa og huldufólk í Hafnarfirði.
Höfundur: Esja Eiríkur Didziokas

Sögur eldri Hafnfirðinga – skapandi samantekt á frásögnum eldra fólks í Hafnarfirði um það sem liggur því á hjarta. Höfundur: Kristín Birta

Án titils – Egill Ari sameinaði tækni og myndlist í gagnvirku vídeóverki þar sem áhorfandinn verður sjálfur hluti af listaverkinu. Höfundur: Egill Ari

Tíminn – skapandi skrif þar sem tíminn birtist á fjölbreyttan hátt. Höfundur: Þór Ásbjörnsson

Plokking rusl – Ish hefur sameinað umhverfisvernd, ritlist og íslenskunám með því að ganga um Hafnarfjörð, plokka rusl og nýta tímann til að hugsa, skapa og yrkja. Afraksturinn birtist í „Zine“, smáriti með ljóðum innblásnum af plokkgönguferðunum. Höfundur: Ish

Raddir framtíðar og Skvísurnar miklu – skapandi skrif fyrir börn og fyrir valdar í skólum. Höfundur: Snæfríður Hannesson

100 ára plús – Aster vann að endursköpun klassískra málverka og teiknaði meðal annars eftir The Love Potion frá árinu 1903 eftir Evelyn De Morgan. Höfundur: Aster

Sköpun sem lífgar upp á bæinn

Skapandi sumarstörf voru endurvakin árið 2021 í samstarfi Hafnarfjarðarbæjar og Ungmennahússins Hamars, en verkefnið hafði áður verið starfrækt sumarið 2017. Hugmyndin er að gefa ungu fólki svigrúm til að hrinda eigin skapandi hugmyndum í framkvæmd og um leið færa listina út í bæjarlífið þar sem íbúar og gestir geta rekist á hana með óvæntum hætti.

Uppskeruhátíðin markaði lok viðburðaríks og skapandi sumars og sýndi vel þá breidd sem rúmast undir merkjum Skapandi sumarstarfa – þar sem Hafnarfjörður verður í senn vinnustofa, viðfangsefni og vettvangur ungs listafólks.

Já, svona eflum við hafnfirska list til framtíðar!

Ábendingagátt