Skapandi sumarstörf – Esjar / Huldufólk í Hafnarfirði

Fréttir

Listakvárið og textasmiðurinn Esjar vinnur á vegum skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði í ár að því að safna vitneskju um huldufólk hér í bænum og setja saman myndskreytt vasakver.

„Ég heiti Esjar Eiríkur og er listakvár og textasmiður. Ég heillast að öllu því sem auðvelt er að missa af í umheiminum og náttúrunni og nýt þess að skrifa ritverk, ljóð, og sögur fyrir bókahilluna heima, vini og vandamenn. En í list minni vinn ég mikið með söguþræði, náttúru og persónusköpun. Eins og er legg ég stund á BA-nám í myndlist við Gerrit Rietveld listaháskólann í Amsterdam.“

„Verkefnið mitt í sumar snýst um að safna vitneskju um huldufólk, þá sérstaklega huldufólk Hafnarfjarðar og setja saman myndskreytt vasakver út frá því.“

Skemmtilegt og fróðlegt sköpunarferli

„Síðustu vikur hef ég verið að vinna að því að skrifa og setja saman texta og nú er ég nýbyrjað á myndskreytingum en skrifin eru farin í yfirferð. Ég byrjaði á verkefninu í júní en fyrsta skrefið var að afla upplýsinga, taka viðtöl við fólk og kynna mér það sem við vitum um álfa. Ég gerði það m.a. með því að dreifa spjöldum um bæinn, ganga um með horn á höfði á 17. júní, spjalla við fólk og grúska í gömlum bókum. Ferlið hefur bæði verið mjög skemmtilegt og fróðlegt, en mér finnst ég mun fróðari um þessar hulduverur núna en þegar ég fékk hugmyndina. Það sem ég hef haft mesta ánægju af hingað til var að læra af fólki sem veit meira en ég um þjóðfræði og þjóðtrú, sem og að heimsækja sjálfur bústaði huldufólks af opnum hug.“

Hægt að nálgast bókina á Bókasafni Hafnarfjarðar í haust

Esjar frumsýndi lokaafurðina á uppskeruhátíð skapandi sumarstarfa þann 6.ágúst síðastliðinn. En einnig verður hægt að nálgast bókina á Bókasafni Hafnarfjarðar í haust.

Sjá frétt um uppskeruhátíð Skapandi sumarstarfa í ár.

 

„Til þess að fylgjast með mér í mínum ævintýrum er best að fylgja mér á Instagram: @spesjar, en ég er að vinna í því að færa mig yfir á betri miðil og stofna heimasíðu, en mun auglýsa hana þar þegar þar að kemur.“

UM SKAPANDI SUMARSTÖRF 2026

Sumarið 2021 ákvað Hafnarfjarðarbær í samstarfi við Ungmennahús bæjarins, Hamarinn, að endurvekja verkefnið “Skapandi sumarstörf” sem hafði verið starfrækt sumarið 2017. Þá bauðst einstaklingum og hópum á aldrinum 18-25 ára að koma með hugmyndir að skapandi verkefnum í Hafnarfirði. Valdir hópar fengu tækifæri til að starfa við ýmis skapandi verkefni á ýmsum sviðum lista sem einnig myndu lífga upp á mannlífið í bænum, gleðja ferðamenn og íbúa með einum eða öðrum hætti. Starfsfólki Skapandi sumarstarfa, sem rekið er sem hluti af Vinnuskóla Hafnarfjarðar, er ætlað að glæða bæinn lífi, gera hann skemmtilegri, fallegri og fjölbreyttari með listrænum og skapandi uppákomum. Verkefnin eru fjölbreytt og höfða til mismunandi aldurshópa og áhugasviða.

Í ár eru níu fjölbreytt verkefni sem starfa á vegum skapandi sumarstarfa og verða þau kynnt vikulega út sumarið.

Ábendingagátt