Skapandi sumarstörf – Þór / Tíma-ritið

Fréttir

Þór Ástþórsson, sviðslistanemi, vinnur á vegum Skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði í ár að spennandi verkefni sem ber heitið Tíma-ritið. Í verkefninu rannsakar Þór fjölbreytileika tímans í gegnum sögur og ævintýri.

Þór Ástþórsson, sviðslistanemi, vinnur á vegum Skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði í ár að spennandi verkefni sem ber heitið Tíma-ritið. Í verkefninu rannsakar Þór fjölbreytileika tímans í gegnum sögur og ævintýri.

Sumrinu lýkur með heilu ritsafni og kvikmyndahandriti

Í ritsafni sumarsins, Tíma-ritið, fléttar Þór saman frumsömdum örverkum, smásögum, leikhandritum, ljóðum og prósum. Viðfangsefnið kveikti á innblæstri hjá höfundinum, sem lýkur sumrinu ekki aðeins með heilt ritsafn í farteskinu, heldur einnig nýfætt kvikmyndahandrit í fullri lengd.

Tíminn skoðaður frá ólíkum sjónarhornum

Verkefnið miðar að því að skoða tímann á fjölbreyttan og nýstárlegan hátt. Með því að velta tímanum fyrir sér út frá ólíkum sjónarhornum skapast rými til að skynja hin ýmsu form hans og birtingarmyndir – hvort sem það er sem hugtak, persónugerving, tímabil eða tímaskeið.

Enn opið fyrir innsent efni

Upphaflega stóð til að vinna efni úr textum og hugmyndum sem almenningur myndi senda inn í gegnum gátt á Instagram síðu verkefnisins. Þótt þátttakan hafi verið frekar dræm framan af er gáttin enn opin. Þór hvetur því alla áhugasama til að nýta tækifærið og senda inn sögur, ljóð eða pælingar um tímann.

Uppskeruhátíð Skapandi sumarstarfa

Afrakstur sumarsins var sýndur á uppskeruhátíð Skapandi sumarstarfa þann 6. ágúst síðastliðinn við góðar viðtökur. En við hvetjum bæjarbúa og aðra listunnendur eindregið til að taka þátt í verkefninu og fylgjast með framhaldinu hjá þessum hæfileikaríka höfundi á Instagram síðu Tíma-ritsins.

UM SKAPANDI SUMARSTÖRF 2026

Sumarið 2021 ákvað Hafnarfjarðarbær í samstarfi við Ungmennahús bæjarins, Hamarinn, að endurvekja verkefnið “Skapandi sumarstörf” sem hafði verið starfrækt sumarið 2017. Þá bauðst einstaklingum og hópum á aldrinum 18-25 ára að koma með hugmyndir að skapandi verkefnum í Hafnarfirði. Valdir hópar fengu tækifæri til að starfa við ýmis skapandi verkefni á ýmsum sviðum lista sem einnig myndu lífga upp á mannlífið í bænum, gleðja ferðamenn og íbúa með einum eða öðrum hætti. Starfsfólki Skapandi sumarstarfa, sem rekið er sem hluti af Vinnuskóla Hafnarfjarðar, er ætlað að glæða bæinn lífi, gera hann skemmtilegri, fallegri og fjölbreyttari með listrænum og skapandi uppákomum. Verkefnin eru fjölbreytt og höfða til mismunandi aldurshópa og áhugasviða.

Í ár eru níu fjölbreytt verkefni sem starfa á vegum skapandi sumarstarfa og verða þau kynnt vikulega út sumarið.

Ábendingagátt