Skapandi sumarstörf – Birta / Tímaritið Urður

Fréttir

Birta Bjarkadóttir, listakona og skáld, vinnur á vegum Skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði í ár að tímaritinu Urður, sem samanstendur af frásögnum eldra fólks í Hafnarfirði.

Birta Bjarkadóttir vinnur að tímaritinu Urður á vegum skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði í ár. Hún er listakona og skáld sem vinnur með ólíka miðla, en fæst einkum við klippimyndagerð og skrif. Hún er nýútskrifuð úr grunnnámi í sagnfræði og hefur mikinn áhuga á rannsóknum sem snúa að minni, minningum og fortíðarþrá.

Frásagnir og minningar

Í tímaritinu Urður safnar Birta saman frásögnum og minningum Hafnfirðinga. Það gerir hún í gegnum fjölbreytt form; sögur, ljóð og ljósmyndir, en einblínir að miklu leiti á söknuð og skoðar hvernig fólk man og rifjar upp fortíðina. Tímaritið samanstendur af innsendu efni, frumsömdu efni og ljósmyndum.

Útgáfuhóf í Nýsköpunarsetrinu 24.ágúst

Fylgjast má með þessu frábæra verkefni og skapandi listakonu á Instagram undir notendanafninu @timaritidurdur, en þar verður einnig hægt að nálgast vefsíðu verkefnisins þegar að því kemur. Birta bíður öll hjartanlega velkomin í útgáfuhóf tímaritsins í Nýsköpunarsetrinu við lækinn mánudaginn 24. ágúst milli kl.16:00 og 18:00. Þar mun listakvárið Esjar einnig sýna og selja vasakverið sitt um huldufólk.

UM SKAPANDI SUMARSTÖRF 2026

Sumarið 2021 ákvað Hafnarfjarðarbær í samstarfi við Ungmennahús bæjarins, Hamarinn, að endurvekja verkefnið “Skapandi sumarstörf” sem hafði verið starfrækt sumarið 2017. Þá bauðst einstaklingum og hópum á aldrinum 18-25 ára að koma með hugmyndir að skapandi verkefnum í Hafnarfirði. Valdir hópar fengu tækifæri til að starfa við ýmis skapandi verkefni á ýmsum sviðum lista sem einnig myndu lífga upp á mannlífið í bænum, gleðja ferðamenn og íbúa með einum eða öðrum hætti. Starfsfólki Skapandi sumarstarfa, sem rekið er sem hluti af Vinnuskóla Hafnarfjarðar, er ætlað að glæða bæinn lífi, gera hann skemmtilegri, fallegri og fjölbreyttari með listrænum og skapandi uppákomum. Verkefnin eru fjölbreytt og höfða til mismunandi aldurshópa og áhugasviða.

Í ár eru níu fjölbreytt verkefni sem starfa á vegum skapandi sumarstarfa og verða þau kynnt vikulega út sumarið.

Ábendingagátt