Reynir Skarp er handritshöfundur og framleiðandi sem hefur komið að gerð fjölmargra stuttmynda og tónlistarmyndanda. Eftir að hafa lokið námi á kvikmyndagerðarbraut Borgarholtsskóla hélt hann til Danmerkur, þar sem hann dýpkaði þekkingu sína við Filmhøjskolen Møn.
Fjölbreytt verkefni
Meðal nýjustu verkefna Reynis er stuttmyndin Kveðja, Röð 9 Sæti 1, sem hann skrifaði og framleiddi, en hún var frumsýnd á Stockfish kvikmyndahátíðinni. Þá er heimildarmyndin Bíóhöllin nú í eftirvinnslu, en hún er í leikstjórn Reynis og fjallar um sögu Sambíóanna í Álfabakka.
Handunnið frá grunni
Um þessar mundir vinnur Reynir að stuttmyndinni Rætur, sem tekin er upp á 16mm filmu. Myndin fylgir ströngum reglugerðum dönsku nýbylgjunnar DOGMA25, sem leyfir meðal annars ekki aðkomu internetsins og krefst handunninna vinnubragða í gegnum allt sköpunarferlið. Handritið er því alfarið handskrifað og öll rannsóknarvinna, bæði hvað varðar nálgun sögunnar og tökustíl, er sótt í bækur. Myndin segir frá konu á þrítugsaldri sem stendur frammi fyrir uppgjöri við fortíðina. Hún ákveður að heimsækja föður sinn úti á landi eftir margra ára samskiptaleysi, en við komuna tekur á móti henni fjölskylda sem hún vissi ekki af. Með aðalhlutverk í myndinni fara þau Inganna Aliverti, Hinrik Ólafsson og Aníta Briem.
Við hvertjum alla áhugasama eindregið til að fylgjast með þessu spennandi verkefni og framúrskarandi unga kvikmyndahöfundi HÉR á Instagram.

UM SKAPANDI SUMARSTÖRF 2026
Sumarið 2021 ákvað Hafnarfjarðarbær í samstarfi við Ungmennahús bæjarins, Hamarinn, að endurvekja verkefnið “Skapandi sumarstörf” sem hafði verið starfrækt sumarið 2017. Þá bauðst einstaklingum og hópum á aldrinum 18-25 ára að koma með hugmyndir að skapandi verkefnum í Hafnarfirði. Valdir hópar fengu tækifæri til að starfa við ýmis skapandi verkefni á ýmsum sviðum lista sem einnig myndu lífga upp á mannlífið í bænum, gleðja ferðamenn og íbúa með einum eða öðrum hætti. Starfsfólki Skapandi sumarstarfa, sem rekið er sem hluti af Vinnuskóla Hafnarfjarðar, er ætlað að glæða bæinn lífi, gera hann skemmtilegri, fallegri og fjölbreyttari með listrænum og skapandi uppákomum. Verkefnin eru fjölbreytt og höfða til mismunandi aldurshópa og áhugasviða.
Í ár eru níu fjölbreytt verkefni sem starfa á vegum skapandi sumarstarfa og verða þau kynnt vikulega út sumarið.