Heimar og himingeimar með alþjóðleg keppnisréttindi í cosplay
Hafnfirðingar munu eiga fulltrúa í einni virtustu búningakeppni heims. Undankeppnin verður á búninga- og leikjasamkomunni Heimar og Himingeimar hér á bókasafninu okkar í Hafnarfirði. Hátíðin hlaut keppnisréttinn í kjölfar keppninnar í fyrra.
Heimar og himingeimar 4.-6. september
Búninga- og leikjasamkoman Heimar og himingeimar hefur fengið réttindi til að halda íslensku undankeppnina fyrir Nordic Cosplay Championship. Sigurvegari undankeppninnar í Hafnarfirði keppir fyrir hönd Íslands í úrslitunum NCC sem er haldin á NärCon í Svíþjóð, en þar er ein stærsta cosplay-keppni Evrópu með um þrjátíu þúsund gestum árlega.
Heimar og himingeimar verður þar með ein af aðeins 16 opinberum undankeppnum keppninnar sem haldnar verða víðs vegar um heiminn árið 2026. Meðal þátttökulanda eru Bandaríkin, Kanada, Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Spánn og Norðurlöndin. Á næsta ári bætast svo Ástralía og Pólland í hópinn.

Unnur með fulltrúum 501. herdeildarinnar sem verða með stórt hlutverk á búninga- og leikjahátíðinni Heimar og himingeimar 4.-6. september.„Þetta er gríðarleg viðurkenning fyrir Heima og himingeima og íslenska cosplay-samfélagið,“ segir Unnur Helga Möller, verkefnastjóri Heima og himingeima. „Íslendingar hafa lengi vel stundað að mæta inn í sport af krafti, og Cosplay er ekkert öðruvísi.“
Unnur segir að Heimum og himingeimum hafi verið boðið að senda keppenda í júlí í ár, eftir hátíðina hér heima í fyrra, en sigurvegarinn þá veiktist og komst ekki. Sá sem vinnur í ár verður því sá fyrsti sem keppir fyrir hönd okkar hafnfirðinga alþjóðlega.

Kleinekonan sigurvegari í cosplay keppni Heima í fyrra. Hér sem ‘Sakurahead’ úr ‘Silent Hill’ tölvuleikjaseríunni. Mynd/AnsayCosplay er skapandi búningalist þar sem fólk endurskapar þekktar persónur eða hannar eigin búninga sem tengjast ákveðnum sögu- og ævintýraheimum. Horft er til handverks, hugmyndavinnu, útfærslu og framkomu á sviði við mat á keppendum.
Keppt verður í þremur flokkum á Heimum og himingeimum:
- Ungliðaflokki fyrir þátttakendur yngri en 14 ára
- Cosplay-flokki fyrir 14 ára og eldri
- Handverksflokki þar sem meira en 60% búninganna þurfa að vera gerð frá grunni af keppandanum sjálfum
Sigurvegari handverksflokksins öðlast rétt til að keppa fyrir Íslands hönd í Nordic Cosplay Championship á NärCon í Svíþjóð.
„Við eigum frábært fólk sem verður okkur til sóma, það er ég viss um. Við sjáum líka metskráningu í Handverksflokkinn hjá okkur í ár,“ segir Unnur.
Hátíðin Heimar og himingeimar var fyrst haldin árið 2024 og mættu um fimm þúsund manns þetta fyrsta ár. Árið eftir hafði hún meira en tvöfaldast og um tíu þúsund heimsóknir voru skráðar yfir hátíðarhelgina.
Hátíðin verður haldin í Bókasafni Hafnarfjarðar í Firði dagana 4.–6. september. Aðgangur og þátttaka eru ókeypis.
- Skráning í cosplay-keppnina er hafin á heimasíðu Heima og himingeima.
Myndatexti: Myndirnar hér fyrir neðan sýna keppendurna á Nordic Cosplay Championship í júlí í ár. Myndir/NCCevent