Hittast og læra íslensku á bókasafninu

Fréttir óflokkað

Hafnarfjarðarbær hefur tekið upp samstarf við Rauða kross Íslands um að kenna erlendum íbúum íslensku. Fyrsti hittingurinn var í gær, þriðjudag. Á annan tug komu og æfðu íslensku sína á Bókasafni Hafnarfjarðarbæjar með sjálfboðaliðum Rauða krossins.

Sjálfboðaliðar leiða spjall á Íslensku

Erlendir íbúar Hafnarfjarðar fá nú tækifæri til að æfa sig í íslensku á bókasafninu okkar alla þriðjudaga. Sjálfboðaliðar Rauða krossins leiða spjallið.

„Við segjum oft að tungumálið sé einhvers konar lykill að samfélaginu. Það er það sem við sjáum,“ segir Þorsteinn Valdimarsson, verkefnastjóri í teymi fólks á flótta hjá Rauða krossinum. „Við hugsum fyrst og fremst um viðkvæma hópa, eins og flóttafólk og aðra innflytjendur með viðkvæman bakgrunn.“

Þorsteinn segir þarfagreiningar sýna að þessum hópum vanti aðgengi að tungumálinu. „Þess vegna reynum við að búa til grasrótarstarf með sjálfboðaliðum sem getur mætt þeirri þörf. Fólk getur þá æft sig í tungumálinu,“ segir hann.

Er þetta víðar en hérna í Bókasafninu?

„Við erum með svipaða hópa á tveimur stöðum í Reykjavík. Svo eru einnig hópar sem starfa á Selfossi, Akranesi og Akureyri,“ segir Þorsteinn. „Hver hópur er með sínu nefi, en allir eru drifnir áfram af sjálfboðaliðum sem hjálpa fólki að ná færni í tungumálinu.“

Snýst þetta ekki líka um tengsl, að fólk myndi tengsl?

„Jú, vissulega,“ segir Þorsteinn. „Það er kannski undirliggjandi í flestu sem við gerum, að mynda einhvers konar samfélag og vera með stað þar sem fólk er boðið velkomið.“

Hildur Ýr Jónsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar hjá Hafnarfjarðarbæ, hefur veg og vanda að skipulagningunni. „Það skiptir máli að geta æft sig í íslensku í nærumhverfinu,“ segir hún og tekur undir með Þorsteini að tungumálið sé oft lykillinn að samfélaginu. „Hér gefum við fólki stökkpall í að æfa sig í að nota tungumálið og taka þannig meiri þátt í samfélaginu.“

Þorsteinn bendir á að það kosti ekkert að taka þátt. Ánægjulegt sé að sjá starfið fara svona vel af stað, mörg hafi komið. Vikulega verði spjallað á Bókasafninu og mikilvægt að vita að það er ókeypis.

„Við erum svo einnig með starf fjórum sinnum í viku í Reykjavík, á mismunandi tímum og stöðum.“ Spjallið sé rekið áfram af sjálfboðaliðum.

„Ég er mjög stoltur af fólkinu sem við erum með. Það er kannski það mikilvægasta sem þarf að koma fram. Það væri ekkert að gerast ef ekki væri fyrir sjálfboðaliðana.“

Hvenær er spjallið?

  • Á Bókasafni Hafnarfjarðar, þriðjudaga kl. 13:00-14:30.

Á einkennismynd: Þorsteinn Valdimarsson þriðji í röð og Hildur Ýr Jónsdóttir til enda hægra megin með sjálfboðaliðunum sem leiddu íslenskukennsluna í gær.
Ábendingagátt