Umsjónarkennari á yngsta stigi – Öldutúnsskóli
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 21.09.2026
Umsóknarfrestur til: 05.10.2026
Tengiliður: Margrét Sverrisdóttir
Öldutúnsskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á yngsta stigi
Um er að ræða tímabundna afleysingastöðu út skólaárið.
Í Öldutúnsskóla eru um 590 nemendur í 1.-10. bekk.
Í skólanum er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem leitast er við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, fjölbreytta kennsluhætti og öflugt samstarf. Teymisvinna og teymiskennsla skipa veigamikinn sess í skólastarfinu.
Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og starf skólans grundvallast á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og Olweusaráætluninni gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Einnig er lögð rík áhersla á umhverfismál.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast almenna kennslu og umsjón með nemendum á yngsta stigi
- Taka þátt í uppbyggingu og mótun á skólastarfi
- Stuðla að námi og velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk skólans
- Vinna að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
- Starfa í samræmi við stefnu og gildi skólans
- Stuðla að góðum starfsanda og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
- Sinna öðrum verkefnum samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
- Reynsla af kennslu í grunnskóla æskileg
- Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina á yngsta stigi æskileg
- Áhugi og/eða reynsla af umsjónarkennslu
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og góð samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu skólaumhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta, að lágmarki á hæfniþrepi C1 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veita
Margrét Sverrisdóttir skólastjóri, í síma 664-5894 eða með tölvupósti á margret.sverrisdottir@oldutunsskoli.is
Áslaug Hreiðarsdóttir aðstoðarskólastjóri, með tölvupósti á aslaughr@oldutunsskoli.is
Nánari upplýsingar um skólann má finna á www.oldutunsskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 5. október 2026.
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar um að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.