Sérfræðingur á Læk – athvarfið Lækur

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 09.10.2026

Umsóknarfrestur til: 28.10.2026

Tengiliður: Brynja Rut Vilhjálmsdóttir

Viltu hafa jákvæð áhrif á líf fólks?

Leitað er að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi sem sérfræðing á Læk, sem er athvarf fyrir einstaklinga með geðrænar áskoranir. Markmið Lækjar er að draga úr félagslegri einangrun og auka lífsgæði. Í boði er spennandi og lærdómsríkt starf með fjölbreyttum verkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Virkja gesti á þeirra forsendum/fjölbreytt verkefni
  • Leitast við að auka lífsgæði og stuðla að valdeflingu
  • Móttaka gesta Lækjar
  • Aðstoð í eldhúsi
  • Heilsuefling, útivist og sköpun
  • Heilsuefling gesta
  • Sjá um að móta og skapa ný námskeið
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur: 

  • Háskólamenntun (B.A/B.S) á viðurkenndu fagsviði sem nýtist í starfi s.s. sálfræði, uppeldisfræði, iðjuþjálfun, félagsráðgjöf tómstunda- og þroskaþjálfafræði.
  • Reynsla af störfum og samskiptum með geðfötluðum æskileg
  • Áhugi á málaflokknum
  • Frumkvæði og jákvæðni í samskiptum og starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, framtakssemi og samstarfsvilji
  • Hugmyndaauðgi
  • Áhugi á skapandi starfi er kostur og þekking eða reynsla af leirlist og/eða notkun leirbrennsluofns er sérstaklega vel þegin, en ekki skilyrði
  • Geta til að vinna undir álagi og að bregðast við breyttum aðstæðum
  • Íslenskukunnátta

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð. 

Upplýsingar um starfið veitir Brynja Rut Vilhjálmsdóttir, sími: 664-5746 eða 585-5770, eða í gegnum tölvupóst: brynjarut@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.

Umsóknarfrestur er til og með 28. október 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.