Yfir 400 grasker fengu nýtt útlit í Hellisgerði
Yfir 400 grasker fengu nýtt útlit í höndum hugmyndaríkra skurðáhugamanna í Hellisgerði um helgina. „Geggjuð helgi,“ segir Knútur Hreiðarsson, eigandi Helliskaffis í þessum gullfallega listigarði okkar Hafnfirðinga.
Hrekkjavakan framundan!
Líf og fjör var í Hellisgerði um helgina. Fjölskyldur komu saman og létu sköpunargleðina njóta sín við graskeraskurð. Alls fengu yfir 400 grasker nýtt útlit í höndum hugmyndaríkra skurðáhugamanna.
Knútur Hreiðarsson, eigandi Helliskaffis í Hellisgerði, segir graskeraskurðinn kominn til að vera. „Geggjuð helgi,“ segir hann. „Fyrsta og alls ekki sú síðasta.“ Allt sé orðið hreint og fínt og eins og ekkert hafi í skorist – fyrir utan þau grasker sem urðu eftir í listigarðinum og eru nú upplýst með ljósaseríum. Þess virði að sjá!
Keppt var í graskeraskurði og fer dómnefnd nú yfir flottustu graskerin. Vinningshafarnir verða tilkynntir á hrekkjavökunni sjálfri, 31. október.
„Enn er fólk að senda okkur myndir af graskerunum sínum, sem það skar hér í garðinum, og við gefum þeim tíma til þess. Fastagesturinn okkar Sigurjón, sem er listamaður sem býr hér í Hafnarfirði og vinnur að barnabókum með pop-up-flettiskífum, situr meðal annars í dómnefndinni. Hann aðstoðaði okkur alveg helling, peppaði okkur áfram og hjálpaði til við að stilla upp fyrir helgina,“ segir Knútur.
Garðurinn fékk líka flotta yfirhalningu fyrir viðburðinn. „Við fengum líka mikla hjálp frá Daníel Erlingssyni sem lánaði okkur mikið af skrauti. Hann hefur unnið með Skógræktinni að hrekkjavökuviðburði þar og lánaði okkur til að mynda kisturnar,“ lýsir Knútur.
Leikurinn verður endurtekinn að ári, enda hafa margir skapað sér skemmtilegar hefðir í kringum hrekkjavökuna hér í Hafnarfirði. Knútur hvetur öll til að kíkja í Hellisgerði og njóta graskeranna sem fá að standa á meðan veður leyfir. „Næturfrostið hjálpar,“ segir hann og hlær.
Já, góð stemning ríkti í Hellisgerði þar sem ungir sem aldnir nutu þess að skapa saman og koma sér í hrekkjavökugírinn.
Þetta var sannkölluð graskeraveisla og skemmtilegur upptaktur að hrekkjavökunni framundan!