Helgin: Glæpasaga, prinsessur og blús á Ægi
Jón Atli Jónasson rithöfundur kemur lesendum í helgargírinn með glæpasögunni Dauðinn er bara myrkur á Bókasafni Hafnarfjarðar í dag. Prinsessur bjóða til föndurs og blúsinn ómar á Ægi 220. Sundferð, safnaheimsókn og rölt um hjarta Hafnarfjarðar og Hellisgerði gætu svo fullkomnað helgina.
Helgin er sérlega góð í Hafnarfirði
Jón Atli Jónasson er fyrsti gestur Aðdragandans á Bókasafni Hafnarfjarðar. Hann kynnir bókina sína Dauðinn er bara myrkur í dag, föstudaginn 6. nóvember kl. 17–18.
Bókin fjallar um einkaspæjarann Odd Strange. Hann fær hryllilegt mál í fangið sem virðist tengjast fortíð hans. Aðdragandinn færir lesendur nær jólum með hverri síðu og heimsóknum höfunda á bókasafnið á föstudögum í nóvember.
Prinsessur, föndur og anime
Snjósysturnar og Fríða mæta með sögur og söngva í konunglega fjölskyldustund á Bókasafninu á morgun, laugardaginn 7. nóvember milli kl. 13–14. Söngvarnir verða meðal annars á ensku, frönsku, þýsku og pólsku. Prinsessurnar stýra síðan föndurstund þar sem gestir geta búið til eitthvað fallegt til að taka með heim.
Anime-aðdáendur á aldrinum 14–16 ára hittast svo í anime-klúbbi safnsins sama dag kl. 15–17.
Blús og brass á Ægi
GG BLÚS og BLÁA BRASSIÐ sameina krafta sína á Ægi 220 í kvöld föstudagskvöld kl. 21. Nafnarnir Guðmundur Jónsson gítarleikari og Guðmundur Gunnlaugsson trommuleikari fá til liðs við sig Steinar Sigurðarson, Snorra Sigurðarson og Hauk Gröndal. Blúsrokkið fær því hressilegan brassblæ þetta kvöldið.
- Miðar á Stubb og við innganginn
Myndlist í Litla Gallerý
Heimir Snær sýnir verk sín á sýningunni Katabasis í Litla Gallerý. Heitið vísar til ferðar niður í undirheima og listamaðurinn kannar breytingar sem fólk gengur í gegnum á lífsleiðinni.
- Sýningin er opin föstudag, laugardag og sunnudag kl. 14–17 og stendur til 15. nóvember.
Ferðalag um sögu bæjarins
Byggðasafnið býður upp á safnahelgi fyrir alla fjölskylduna. Pakkhúsið, Sívertsens-hús og Beggubúð eru opin laugardag og sunnudag kl. 11–17. Gestir geta kynnt sér sögu bæjarins, litið inn í elsta hús Hafnarfjarðar og skoðað gamla verslunarhætti.
Aðgangur er ókeypis.
Sundsprettur og samvera
Sundlaugar bæjarins eru tilvaldar fyrir hreyfingu, leik og spjall í heita pottinum. Ásvallalaug er opin laugardag kl. 8–18 og sunnudag kl. 8–17. Suðurbæjarlaug tekur á móti sundgestum laugardag kl. 8–18 og sunnudag kl. 8–21. Já, þessar tvær laugar standa okkur opnar og gera helgina betri. Og munum, Sundhöll Hafnarfjarðar er lokuð um helgar.
Miðbæjarrölt og góðar veitingar
Fjörður býður upp á verslanir og veitingar í hjarta bæjarins. Almennur opnunartími verslana er kl. 11–16 á laugardag og kl. 13–16 á sunnudag.
Brikk á Norðurbakka er opið kl. 9–16 báða helgardagana fyrir þau sem langar í súrdeigsbrauð, bakkelsi eða kaffistund. Krydd í Hafnarborg býður einnig upp á veitingar um helgina. Fjöldi góðra veitingastaða er í Hafnarfirði. Hvernig væri að tengja miðbæjarröltið við notalega máltíð?
Teygjum helgina inn í nýja viku
Bókasafnið heldur áfram að bjóða til samveru í næstu viku. Opni leikskóli Memmm er á mánudag kl. 12–14 og mánudagsföndrið kl. 16–18. Sauma- og hönnunarsmiðjan Kit/Cosplay tekur svo við á þriðjudag kl. 17–18.45.
Hafnarborg undirbýr tvær nýjar sýningar sem verða opnaðar fimmtudaginn 12. nóvember kl. 18: Hugrenningar eftir Styrmi Örn Guðmundsson og Vatnsins streymi eftir Beili Liu. Fyrri sýningum lauk 1. nóvember og því er hlé á sýningardagskránni þessa helgi.
Það er því frábær helgi framundan og svo virk vika sem endar með því að Jólaþorpið verður opnað! Já, nú opnar Jólabærinn okkar brátt. Við elskum þennan tíma.