Tómstundaleiðbeinandi – Aldan – Öldutúnsskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 11.11.2026

Umsóknarfrestur til: 25.11.2026

Tengiliður: margret.sverrisdottir@oldutunsskoli.is

Öldutúnsskóli auglýsir eftir tómstundaleiðbeinanda í félagsmiðstöðina Ölduna

Langar þig að vinna með börnum og unglingum í skapandi og skemmtilegu umhverfi?

Við í Öldutúnsskóla leitum að drífandi, jákvæðum og kraftmiklum tómstundaleiðbeinanda til starfa í félagsmiðstöðinni Öldunni. í 30% stöðugildi. Í Öldutúnsskóla eru um 580 nemendur í 1.–10. bekk og leggjum við áherslu á virðingu, virkni og vellíðan í öllu skólastarfi.

Félagsmiðstöðin Aldan býður nemendum í 5.–10. bekk upp á fjölbreytt og metnaðarfullt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur. Starfið byggir á unglingalýðræði, virkri þátttöku og öflugu forvarnastarfi. Þar fá börn og unglingar tækifæri til að taka þátt í opnu félagsstarfi, skipulagðri dagskrá, hópastarfi og fjölbreyttum viðburðum sem mótaðir eru í samstarfi þeirra og starfsfólks.

Starfið hentar sérstaklega vel fyrir skólafólk eða einstaklinga sem leita að fjölbreyttu og gefandi aukastarfi með börnum og unglingum.

Helstu verkefni

  • Taka þátt í að skipuleggja og þróa fjölbreytta dagskrá í samstarfi við stjórnendur, samstarfsfólk og ungmenni.
  • Eiga í góðum og virkum samskiptum við börn og unglinga og hvetja þau til þátttöku.
  • Stuðla að jákvæðu, öruggu og uppbyggilegu félagslegu umhverfi sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum.
  • Styðja við frumkvæði, félagsfærni og vellíðan barna og unglinga.
  • Sinna öðrum verkefnum samkvæmt starfslýsingu tómstundaleiðbeinanda.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Starfsþjálfun, námskeið og/eða starfsreynsla sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum er kostur.
  • Frumkvæði, jákvætt viðmót og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Góð skipulagshæfni og stundvísi.
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi með börnum og unglingum.
  • Almenn tölvukunnátta.
  • Góð íslenskukunnátta. Gerð er krafa um hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakarvottorð.

Nánari upplýsingar veita: Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri, sími: 664 5894, netfang: margret@oldutunsskoli.is og Kristján Hans Óskarsson, deildarstjóri, sími: 664 5712, netfang: kristjan.oskarsson@oldutunsskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2026

Ferilskrá skal fylgja umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Hafnarfjarðar.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.