Við erum þorpið – Kveikt á fattara foreldranna
Við erum þorpið, fundarröð þar sem við leitumst við að kveikja á fattara foreldra um góða samveru og skýrar heimilisvenjur er í þessari viku. Þrjú kvöld, ein vika og foreldrarnir fá verkfæri sem henta heimilinu og unga fólkinu þar.
Við erum þorpið – þriggja kvölda viðburður
Þetta er vikan þar sem við horfum á hvernig við ætlum að hafa aðventuna. Hvernig við viljum styðja við fjölskylduna. Við erum þorpið, fundarröð þar sem við leitumst við að kveikja á fattara foreldra um góða samveru og skýrar heimilisvenjur er í þessari viku. Þrjú kvöld, ein vika og foreldrarnir fá verkfæri sem henta heimilinu og unga fólkinu þar.
„Tilgangur þorpsins er að bjóða foreldrum í kaffi og fara yfir málin,“ sagði Jóna Rán Pétursdóttir á Rás 2 í morgun. Já, þrjú kvöld, þrjú ólík viðfangsefni en öll gefa þau nýtileg verkfæri.
• Hlustaðu á viðtali við Jónu og Völu Steinsdóttur, formann foreldraráðsins hér
Þrjú kvöld – þrjú ólík viðfangsefni
sérstakrar stílsíðu.
| Dagsetning | Viðburður og staðsetning |
|---|---|
| 17. nóvember | The power of being your own best ally Karen Bluth, Flensborgarskóli. Fyrirlestur á ensku.
|
| 18. nóvember | Unglingar og ólögleg efni Jóna Rán og Lyfjaeftirlitið, Bókasafn Hafnarfjarðar.
|
| 19. nóvember | Listin að vera leiðinlegt foreldri Ársæll Arnarsson, Hafnarborg.
|
Að vera sinn eigin besti bandamaður
Skoðum nú fyrirlestrana saman. Sá fyrsti fjallar um hvernig ungmenni geta lært að standa með sjálfum sér og tekist á við mótlæti, höfnun, samskiptaörðugleika og áskoranir í námi og félagslífi. Við fáum til okkar bandaríska sérfræðinginn Karen Bluth. Jóna segir mikinn feng að fá hana hingað í fjörðinn okkar.
„Við vitum að börnin okkar munu ekki ganga á bleiku skýi út lífið. Það er ákveðin ró fólgin í því að geta gefið þeim verkfæri til að takast á við erfiðar aðstæður,“ segir hún og hvetur foreldra til að gefa sér þennan tíma og fá þau verkfæri sem þarf.
- Fundinum er streymt á Teams. Hér er hlekkurinn:https://teams.microsoft.com/meet/3141280307523280?p=mSa1blpTs1hZ6k5R8k
Unglingar og ólögleg efni
Á öðru kvöldinu skoðum við frammistöðubætandi efni, fæðubótarefni og markaðssetningunni sem unglingar mæta á samfélagsmiðlum. Fulltrúar Lyfjaeftirlitsins fara yfir rannsóknir, staðreyndir og áhættu í umhverfi þar sem unglingunum er lofað að ná skjótum árangri.
„Við sjáum mikla markaðssetningu og hraða þróun. Þetta er að mörgu leyti gamla sagan um að selja eftirsóknarvert útlit, en nú er hraðinn orðinn meiri og loforðin um að árangur nánist samstundis,“ segir Jóna Rán.
Hún segir mikilvægt að foreldrar og unglingar fái upplýsingar beint frá fagfólki fremur en þeim sem hafa hagsmuni af sölu varanna.
Listin að vera leiðinlegt foreldri
Á þriðja kvöldinu fjallar Ársæll um þá jafnvægislist að vera hlýtt og styðjandi foreldri en jafnframt setja skýr mörk. Hvernig bregðumst við við þegar reynir á þolinmæðina og hvernig höldum við ró okkar þegar uppeldið verður krefjandi?
„Kynslóðirnar hafa sveiflast enda á milli í uppeldinu, frá því að vera mjög ströng yfir í að vilja fyrst og fremst vera vinir barnanna okkar. Nú erum við að reyna að finna jafnvægið, halda í traustið og samskiptin en líka mörkin sem börnin þurfa,“ segir Jóna Rán.
Fjölskyldurnar velji eða mæti á allt
Jóna Rán segir að þegar fræðslan sé í boði þrjú kvöld í röð geti fjölskyldur valið þau viðfangsefni sem höfða mest til þeirra eða skipt með sér kvöldunum.
„Við höfum heyrt af foreldrum sem ætla að skipta þessu á milli sín, hver fer á hvaða kvöld. Aðrir ætla að mæta á allt saman. Við vitum að foreldrar eru uppteknir, meðal annars í frístundastarfi barnanna, og með þessu viljum við gefa sem flestum tækifæri til að nýta sér fræðsluna.“
- Allir viðburðirnir eru ókeypis
Við hvetjum foreldra til að mæta og sjálfsagt að taka unglinginn með!