Kynningarfundur vegna skipulagsmála í Hafnarfirði
Kynningarfundur vegna skipulagsmála tengd Straumsvík í Hafnarfirði verður haldinn í Bæjarbíó þriðjudaginn 25. apríl kl. 20.
Dagskrá fundar
Efni kynningarfundar er breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna aðstöðu og aðkomu að Straumsvíkurhöfn auk umferðaskipulags. Samhliða eru kynntar breytingar á deiliskipulagi Straumsvíkurhafnar og lóðar Rio Tinto við Straumsvík samanber 41. gr. laga 123/2010. Í þessum deiliskipulögum er gerð nánari grein fyrir nýjum umferðartengingum, iðnaðarlóðum og uppbyggingarheimildum á svæðinu. Jafnframt er gerð grein fyrir skipulagslegum breytingum er lúta að fyrirhugaðri starfsemi Carbfix hf. á lóð Rio Tinto við Straumsvík. Þegar kynningarfundi um skipulagsmálin lýkur munu Carbfix og ISAL í beinu framhaldi kynna áform sín um kolefnisbindingu á svæðinu.
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi var samþykkt 1. febrúar 2023
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 1. febrúar 2023 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og að málsmeðferð yrði í samræmi við 30. gr. laga 123/2010. Forsendur breytinga er að unnið er að því að bæta hafnaraðstöðu í Straumsvíkurhöfn, bæta tengingar milli Straumsvíkurhafnar og iðnaðarsvæða sunnan Reykjanesbrautar og almennt bæta umferðaskipulag við Kapelluhraun.
Gerð er breyting á afmörkun Straumsvíkurhafnar (H4) sem stækkar úr 24ha í 25,1ha. Höfnin er stækkuð til að hægt sé að leggja nýjan tengiveg á landfyllingu að höfninni. Ný hafnartenging er afmörkuð á uppdrátt frá nýjum undirgöngum undir Reykjanesbraut að Iðnaðarsvæði I5.
Ný undirgöng eru afmörkuð undir Reykjanesbraut sem tengja saman svæði norðan og sunnan Reykjanesbrautar. Ný tengibraut er afmörkuð milli iðnaðarsvæða I3 og I4. Tengibrautin tengist norðursvæði um undirgöng undir Reykjanesbraut og tengist hringtorgi við Krýsuvíkurgatnamót. Samhliða er gerð breyting á fyrirkomulagi göngu- og hjólastíga. Þá er gerð breyting á legu vega umhverfis iðnaðarsvæði I4 þar sem vegum er hnikað til.
Viðfangsefni deiliskipulags iðnaðarsvæðis við Kapelluhraun er að sníða ramma utan um iðnaðarhverfi í samræmi við breyttar áherslur í aðalskipulagi Hafnarfjarðar. Upphaf deiliskipulagsverkefnisins má rekja til samstarfs Álversins í Straumsvík (ÍSAL), sem er lóðarhafi um 52 ha lóðar í Kapelluhrauni (L197313, skráð stærð 52 ha) og Carbfix um að koma fyrir Coda Terminal, móttöku og förgunarstöð fyrir koldíoxíð (CO2).
Meðfylgjandi gögn tengjast málinu
- Aðalskipulagsuppdráttur
- Deiliskipulag iðnaðarsvæðis í Kapelluhrauni
- Greinargerð – deiliskipulag iðnaðarsvæðis í Kapelluhrauni
- Deiliskipulag Rauðamelsnáma
- Breikkun Reykjanesbrautar – deiliskipulagsbreyting – tillaga
- Breikkun Reykjanesbrautar – deiliskipulag
- Tillaga að deiliskipulagsbreytingu Álversins í Straumsvík – landfylling og nýr aðkomuvegur
- Greinargerð – tillaga að deiliskipulagsbreyting Álversins í Straumsvík – landfylling og nýr aðkomuvegur
- Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðarkaupstaðar 2013-2025
- Hvaleyri – deiliskipulagsbreyting – skipulagsuppdráttur