18 verkefni fengu menningarstyrk
Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar til verkefna og viðburða voru afhentir við hátíðlega athöfn í Hafnarborg síðasta vetrardag samhliða útnefningu bæjarlistamanns og hlutu 18 verkefni styrk að þessu sinni.
Aðilar og verkefni sem auðga og dýpka listalíf bæjarins
Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar til verkefna og viðburða voru afhentir við hátíðlega athöfn í Hafnarborg síðasta vetrardag samhliða útnefningu bæjarlistamanns og hlutu 18 verkefni styrk að þessu sinni.
Menningarstyrkir eru afhentir tvisvar sinnum á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til að auðga og dýpka enn frekar listalíf bæjarins. Úthlutun styrkja Hafnarfjarðarbæjar byggir á mati á umsóknum. Menningarviðburðir, listamenn, félagasamtök eða stofnanir sem sækja um styrk verða að tengjast Hafnarfirði með einhverjum hætti. Hér telur t.a.m. föst búseta, að viðburður/verkefni fari fram í Hafnarfirði og/eða að verkefni feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Hafnarfjarðar.
Styrkþegar í fyrri úthlutun menningarstyrkja 2024
- Elvar Gunnarsson, Sýningarviðburðir 2024 – Litla Gallerý, 610.000 kr.
- GETA – hjálparsamtök, Fjölmenningarleg 17. júní hátíð, 300.000 kr.
- Guðrún Erla Hómarsdóttir, Freyðijól 2024 / Jólakabarett, 380.000 kr.
- Páll Eyjólfsson, Hjarta Hafnarfjarðar samstarfssamningur framlenging, 5.000.000 kr.
- Jasper Matthew Bunch, Apolló listahátíð, 200.000 kr.
- List án landamæra, List án landamæra listahátið, 200.000 kr.
- Lúðrasveit Hafnarfjarðar, Tónleikahald 2024, 300.000 kr.
- Sveinn Guðmundsson, Melodica Festival Hafnarfjörður, 250.000 kr.
- Sunna Gunnlaugsdóttir, Ástin, bjartsýnin og andskotans blaðrið í fólkið, 100.000 kr.
- Helena Björk Jónasdóttir, Dansað í gegnum Hafnarfjörð, 200.000 kr.
- Leikhópurinn Lotta, Bangsímon, 130.000 kr.
- Snædís Lilja Ingadóttir, Óður til móður, 200.000 kr.
- Skógræktarfélag Hafnarfjarðar, Líf í lundi, 200.000 kr.
- Íris Ásmundardóttir, Á meðal / Amidst, 100.000 kr.
- Birna Rún Eiríksdóttir, Uppistand í miðbænum, 380.000 kr.
- Björn Thoroddsen, Gítarveisla Bjössa Thor, 300.000 kr.
- Hljómtónn slf, Síðdegistónleikar í Hafnarborg árið 2024, 300.000 kr.
- Jessica Anne Chambers, Páskaeggjaleit Prinsessur, 100.000 kr.
Ekkert verkefni hlaut samstarfssamning til tveggja eða þriggja ára að þessu sinni en í gildi eru fimm samstarfssamningar vegna verkefnanna Guitarama – Gítarveisla Bjössa Thor, HEIMA tónlistarhátíð, Sveinssafn – stefnumót listar og náttúru, Sönghátíð í Hafnarborg og Víkíngahátíð á Víðistaðatúni.
Hamingjuóskir til styrkþega
Hafnarfjarðarbær óskar styrkhöfum öllum innilega til hamingju! Auglýst verður eftir umsóknum fyrir síðari úthlutun ársins 2024 í ágúst.