Gong, ganga og dáleiðsla bíða þín á Hamingjudögum
Hamingjudagar í Hafnarfirði standa yfir þennan mánuðinn. Þeir gefa okkur tækifæri til að elta hamingjuna og hitta hamingjusamt fólk. Þrennir viðburðir þessa viku.
Hamingjudagar í Hafnarfirði fyrir okkur öll!
Um eitt hundrað manns mættu á fyrsta viðburð Hamingjudaga í Hafnarfirði 2024, HamingjuHlaup með Krissa. Stemningin var frábær enda flutti hann lagið sitt 10 km fyrir hlaupið. Veðrið var geggjað. Félagsskapurinn yndislegur.
Hamingjudagar í Hafnarfirði standa yfir þennan mánuðinn. Þeir gefa okkur tækifæri til að elta hamingjuna og hitta hamingjusamt fólk. Fjöldi viðburða verða nú í september sem efla andann, bæta líðan okkar og hvetja okkur til að auka lífsgæðin. Hópur fólks sem bíður eftir þér.
Og hvað er í boði þessa vikuna?
- Dáleiðsluslökun fyrir Hamingju er miðvikudaginn 11. september klukkan 20 og 21.
- HamingjuGong við Hvaleyrarvatn er fimmtudaginn 12. september klukkan 17:30
- HamingjuGanga með Jónatani Garðars á Selhöfða er laugardaginn 14. September kl. 13
Sjá viðburðina alla hér.
Já, leyfum okkur að lifa og njóta gjaldfrjálst og glöð á Hamingjudögum í Hafnarfirði. Hittum hamingjuna í Hafnarfirði.