Fjölþjóðleg glíma hjá SAMBO 80 – Samið til tveggja ára

Fréttir

Íþróttafélaginu Sambo 80 hefur tryggð aðstaðan að Flatarhrauni 14 til næstu tveggja ára. Samstarfið við Sambó 80 hófst árið 2019. Markmiðið er að bjóða fjölbreytta íþróttaiðkun í Hafnarfjarðarbæ en iðkendur hjá Sambo 80 stunda sjálfsvarnar- og glímuíþrótt.

Fjölbreytt íþróttalíf í Hafnarfirði

Hafnarfjarðarbær og SAMBO 80 hafa samið um umsjón og rekstur á íþróttaaðstöðu félagsins að Flatarhrauni 14. SAMBO rekur starfið en Hafnarfjörður lánar þeim húsnæðið. Valdimar Víðisson bæjarstjóri og Alex Stoljarov skrifuðu undir samninginn í síðustu viku.

Valdimar Víðisson bæjarstjóri og Alex Stoljarov stofnandi Sambo 80 rituðu undir áframhaldandi samstarf í síðustu viku.

Alex og kona hans Helga Ingólfsdóttir reka SAMBO 80. Íþróttin er enn ný hér á landi og  að ná fótfestu. Helga segir á fimmta tug stunda íþróttina hjá þeim. „SAMBO er alþjóðleg íþrótt, komin inn í Ólympíufjölskylduna og er nú einnig innan ÍSÍ. Það skiptir máli. Þetta er íþrótt sem er stunduð í næstum 200 löndum í heiminum, upprunnin í Sovétríkjunum og hefur þróast þaðan,“ segir Helga. Íþróttin minni á margan hátt á júdó eða Ju Jitsu og fer fram á dýnu.

Sambo 80 sannað sig í Hafnarfirði

Markmið Hafnarfjarðarbæjar með samstarfssamningum er að auka framboð og aðgengi að íþróttum og tómstundum fyrir íbúa og er þessi grein hefur sannað sig sem góð viðbót við þá íþróttaflóru sem þegar er til staðar í Hafnarfirði.

„Þetta er ný íþrótt á Íslandi. Töluverður hluti iðkenda er af erlendum uppruna, koma frá Balkanskaganum og löndum þar í kring og þekkja íþróttina.“ Alex, sem talar rússnesku, ensku og íslensku, sé með alþjóðleg þjálfunarréttindi og einnig dómararéttindi.

„Við erum að fara með sex stráka til Hollands í keppnisferð,“ segir Helga. Þegar hafi nokkrar ferðir verið farnar út og Íslandsmeistaramót haldið þar sem systurfélag úr Reykjanesbæ hafi einnig tekið þátt.

„Við hvetjum fólk til að koma og prófa. Við leggjum áherslu á faglegt starf og að krakkarnir komi þarna til að þjálfa sig. Það er agi í þessari íþróttagrein. Það skiptir miklu máli að hafa krakka sem vilja leggja á sig,“ segir Helga

Öll séu velkomin í prufutíma. Óháð aldri. „Það kom einn í síðustu viku yfir fertugt. Hann ætlar að halda áfram,“ segir Helga.

Grunnþjálfun sem veitir liðleika og styrk

„Grunnþjálfunin er liðleiki og styrkur, þú lærir að detta, styrkir hálsinn, lærir að rúlla og önnur grunnþjálfun áður en þú ferð að glíma. Þessi grunnþjálfun nýtist í allar íþróttir. Þetta er góð þjálfun fyrir krakka. Ég mæli með,“ segir Helga varaformaður Sambo 80. Hún þakkar Hafnarfjarðarbæ stuðninginn.

„Við höfum gert þetta saman,“ segir hún. „Við hefðum aldrei getað þetta nema af því að Hafnarfjarðarbær hefur staðið þétt við bakið á okkur. Nú er aðstaðan þannig að við getum haldið mót,“ segir Helga. „Við byggjum upp í rólegheitum og höldum í fagmennskuna.“

 

Ábendingagátt