Horfumst í augu – Skjánotkunin er heimsvandi

Barnvænt sveitarfélag Fréttir

Unnur Arna veitir öllum áhugasömum aukin verkfæri til að takast á við áskoranir tengdar skjátíma barna og ungmenna á fræðslustundinni Horfumst í augu í Bæjarbíói kl. 17 í dag. Frítt inn.

Horfumst í augu – Bæjarbíó kl. 17

„Þetta er vandi á heimsvísu,“ sagði Unnur Arna Jónsdóttir, eigandi Hugarfrelsis, í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. „Hann snýr ekki aðeins að börnunum okkar heldur okkur sjálfum,“ sagði hún og vísaði til skjánotkunar.

Unnur Arna veitir öllum áhugasömum aukin verkfæri til að takast á við áskoranir tengdar skjátíma barna og ungmenna á fræðslustundinni Horfumst í augu í Bæjarbíói kl. 17 í dag, þriðjudag. Fundurinn er opinn öllum áhugasömum. Frítt inn.

Kristín María og Unnur Arna á Bylgjunni nú í morgun. Mynd/Skjáskot/Vísir

Unnur benti á að 8-10 ára gömul börn eyði sex klukkustundum fyrir framan skjái á dag. „Þetta eru tölur sem taka ekki til náms.“ Táningar eyði 9 klukkustundum fyrir framan skjáinn á dag. „Börnin eru að fá 237 tilkynningar í símann sinn á herjum degi. Tilkynningu á fjögurra mínútna fresti. Þetta er stöðugt áreiti,“ fullyrti hún.

 

Mörkin séu skýr

En eiga foreldrar erfitt með að setja mörk? Kristín María Thoroddsen, formaður fræðsluráðs hér í Hafnarfirði svaraði því játandi. „Við höfum fyrir framan okkur rannsóknir sem sýna að tengslamyndun og málþroski eru að dala,“ sagði hún. Þetta sæist strax á leikskólaaldri. Hegðun sé að breytast. Fleiri börn glími orðið við félagsfælni.

Við erum þorpið

Fundurinn er hluti fundarraðarinnar Við erum þorpið. „Það þarf eitt þorp til að ala upp barn,“ sagði Kristín og sagði frá því hvernig hnífaárásin á Menningarnótt varð til þess að þessari fundarröð um líðan og öryggi ungs fólks var ýtt úr vör. Fundaröðin er jafnframt hluti af vegferð Hafnarfjarðarbæjar að hljóta viðurkenningu sem barnvænt sveitarfélag UNICEF á Íslandi.

Foreldraráð frumsýnir myndband

Auk leiðsagnar Unnar á fundinum frumsýnir Foreldraráð Hafnarfjarðar áhugavert myndband tengt skjátíma barna. Foreldraráðið setur einnig fram spennandi hugmyndir til að fjölga samverustundum, útiveru og upplifun.

Kór Öldutúnsskóla, undir styrkri stjórn Brynhildar Auðbjargardóttur, mun flytja lagið Skínum skært og gerast þannig boðberar kærleikans í Hafnarfirði.

Stella Björg Kristinsdóttir, fagstjóri forvarna og frístundastarfs hjá Hafnarfjarðarbæ, sér um stýringu fræðslustundar.

Þekkjum vandann

Er þetta þjóðþrifamál? Spurði þáttastjórnandinn Heimir Karlsson. „Algjörlega,“ sagði Unnur. „Fyrsta skref er að vera meðvitaður og þá getum við unnið með verkefnið.“ Farið yrði yfir áhrif skjátíma og hvaða einföldu skerf við getum tekið til fyrir börnin okkar.

Ábendingagátt