Barnahátíðin Kátt á Víðistaðatúni alla helgina
Barnahátíðin Kátt verður á Víðistaðatúni um helgina. Sól í kortunum og dagskráin hlaðin stjörnum, smiðjum og áhugaverðum atriðum. Börnin verða svo kát á Víðistaðatúni um helgina.
Kátt á Víðistaðatúni
Aron Can, MC Gauti, VÆB, og Gusgusar, allskonar smiðjur eins og fyrir hár, föndur og skartgripagerð. Pláhneta verður með skynjunarsmiðju og hægt verður að fá barnanudd! Ó, já, það verður barnahátíð á Víðistaðatúni alla helgina; dagana 28.-29. júní.
Barnahátíðin Kátt er haldin í 6. sinn og annað sinn hér í Hafnarfirði. Það verður pottþétt stuð. Dagskráin er vegleg eins og þið sjáið.
„Við pössum að dagskráin henti öllum aldurshópum. Við erum með dagskrá fyrir allra yngstu börnin, frá nokkurra mánaða til átján ára,“ segir Hafdís Arnardóttir, verkefnastýra og sérfræðingur í markaðsmálum. Við kíktum á undirbúninginn nú fyrir hádegi. Allt á fleygiferð og flokkur úr vinnuskólanum okkar mættur til að setja upp borð og bekki.
Sólskin í kortunum
„Það er komin sól og hún verður með okkur í hjarta alla helgina. Uppsetningin gengur rosalega vel. Við erum lagt á undan áætlun og miðasalan að fara á fullt,“ segir hún.
Hátíðin er miðuð fyrir fjölskylduna og hugsað er um að einfalda líf þeirra. „Fólk getur skilið skiptitöskurnar eftir heima því við erum með skiptiaðstöðu fyrir ungabörnin,“ segir hún kát.
„Þetta er sjötta árið sem hátíðin er haldin en fyrsta árið sem við erum tvo daga. Við erum bæði fyrr á ferðinni en síðustu ár og tvo daga,“ segir hún og að þau aðstandendur hátíðarinnar hafi viljað horfa á tímann áður en fólk hverfi af landi brott eða í tjaldbúðir utan höfuðborgarsvæðisins.
„Svo virðist líka að jafnaði vera betra veður maí og júní en júlí og ágúst,“ segir hún og svo virðist sem þær hafi veðjað á réttan hest, því veðurspáin er stórkosleg. 15 gráður og sól á morgun laugardag og 15 gráður og hálfskýjað á sunnudag! Þvílík blíða.
Barnamenning mikilvæg
Hafdís segir að þau sem standi að Kátt vilji hafa sem flesta vinni að barnamenningu með sér.
„Pælingin með hátíðinni er að sýna fram á hvað er mikið í gangi í barnamenningu. Við erum með krílafjör, tónheilun sem börnunum finnst næs. Hér er barnanudd.“ Já, þau munu upplifa margt nýtt á Kátt. Frábær stund fyrir fjölskylduna til að koma og verja tímanum sama. „já, þetta er draumaútihátíð fyrir börn og fullorðna,“ segir hún
„Við viljum að hér inni sértu með barninu þínu. Fullorðnir koma ekki inn á svæðið nema í fylgd með börnum og börnin fara ekki út af svæðinu nema í fylgd fullorðinna. Við erum svo spennt og þetta ástríðuverkefni okkar fyrir fjölskyldur að njóta. Kátt á Víðistaðatúni snýst um að vera og gera með börnunum sínum.“