Sumarlestur 2025 – Hvað finnur þú marga fjársjóði?
Eflaust hafa glöggir Hafnfirðingar og gestir bæjarins rekið augun í skær plöstuð spjöld víðsvegar um bæinn. Þau eru hluti af sumarlestri og fjársjóðsleit Bókasafns Hafnarfjarðar, sem býður allri fjölskyldunni í skemmtilegan könnunarleiðangur um fjörðinn fagra í sumar.
Yfir hundrað vönduð verk
Í samstarfi við skólabókasöfn Hafnarfjarðar var komið fyrir kössum, eyðublöðum, umslögum og kynningarefni í öllum skólum bæjarins, þar sem nemendur voru hvattir til að senda inn ljóð og örsögur. Út frá því bárust rúm 107 gild verk innan tímafrests, sem hafa nú verið plöstuð og komið vel fyrir víðsvegar um bæinn.
Hvetur til hreyfingar og samveru
„Verkefnið hvetur til hreyfingar, fær fólk til að kynnast bænum sínum enn betur, hvetur til samveru, dreifir barnamenningu, ritlist og röddum barna um allan bæinn.“ Segir Hugrún Margrét Óladóttir, deildastjóri barna-og ungmennadeilda á Bókasafni Hafnarfjarðar.
Geitungarnir og Verkherinn, atvinnutengd úrræði fyrir fólk með fötlun eða skerta starfsgetu, sjá um reglulegar ástands skoðanir á spjöldunum og skipta út þeim verkum sem hafa skemmst eða týnst.
Hvar leynast fjársjóðirnir?
Hvar var verkunum skilað inn í keppnina? Fjársjóðirnir úr Áslandsskóla verða t.d. í Vesturbænum og Norðurbænum, fjársjóðunum sem var skilað á bókasafninu má finna á Holtinu (óháð því í hvaða skóla höfundurinn gengur).
„Hverfunum var viljandi blandað og svissað til að hvetja börnin og þeirra góða fólk til að skoða bæinn sinn og mögulega finna nýja staði sem þau hafa aldrei komið á.“ Segir Hugrún.
Hvernig tek ég þátt?
Fólk tekur þátt með því að merkja inn á sérstakt eyðublað þau verk sem þau finna um bæinn, en öll verk bera einstakt númer.
Glaðningur fyrir þátttöku
Fyrir eitt útfyllt eyðublað fær þátttakandi hóflegan glaðning, tvö til fjögur eyðublöð gefa enn veglegri glaðning og yfir fimm eyðublöð gefa meiriháttar glaðning.
Í september verða síðan veitt glæsileg verðlaun til þriggja höfunda fyrir þeirra flottu rit-verk!

Mæðgurnar Hafdís Erla og Hanna Líf nýttu blíðviðri hvítasunnuhelgarinnar og fóru í góða hjólaferð um bæinn og skiluðu inn nær 4 heilum eyðublöðum.
Lestrarhestur vikunnar – Skilaðu inn umsögn um bók og þú kemst í lukkupottinn!
„Lestrarhestur vikunnar (ein bókaumsögn jafngildir einum miða í vikulegum úrdrætti) er enn í gangi í allt sumar, en við gerum meira úr honum með því að klippa persónuupplýsingar af og hengja alla þátttökuseðlana upp á tilkynningatöfluna (á seðlunum biðjum við krakkana um að teikna mynd, skrifa hvað þeim fannst og hverjar aðalpersónurnar eru)“, segir Hugrún.
Þú getur nálgast eyðublöð á íslensku, ensku og pólsku á bókasafninu eða hér.
Þetta er frábært tækifæri fyrir alla fjölskylduna til að kynnast firðinum okkar fagra enn betur, hver veit nema maður finni sinn nýja uppáhalds stað!






