Finnum hamingjuna – Hamingjudagar í Hafnarfirði 2025!
Hittu hamingjuna í Hafnarfirði nú í september. Ellefu viðburðir verða á vegum Heilsubæjarins sem allir hjálpa til við að efla heilsu og bæta líðan. Tökum þátt.
Já, hamingjan er hér í Hafnarfirði
- Hvar? Í hjarta Heilsubæjarins – víða í Hafnarfirði
- Hvenær? Frá 1. til 30. september 2025
Hafnfirðingar, nú er tíminn að hlúa að hamingjunni í hversdeginum. Hamingjudagar í Hafnarfirði standa yfir í september. Áhersla er lögð á heilsusamlegan lífsstíl, jákvæðar upplifanir, samveru og hamingju sem valkost og lífsstíl.
„Hamingjudagar í Hafnarfirði gefa frábært tækifæri til að tengjast nágrönnum, vinum og fjölskyldu á góðri stund – sameinast og njóta samverunnar. Ég hvet ykkur öll til að taka þátt,“ segir Valdimar Víðisson bæjarstjóri.
Hamingjudagarnir hafa markmið
- Jákvæðni og vellíðan í forgangi – hamingjan er eitthvað sem við getum öll unnið að.
- Fjölbreytt dagskrá í boði fyrir alla aldurshópa og áhugasvið – hreyfing, náttúra, skapandi leikur og félagsleg samvera.
- Samfélagsleg þátttaka – við finnum hamingjuna saman í samfélaginu okkar
Viðburðir sem auka hamingjuna:
- HamingjuGong við Hvaleyrarvatn – Mið. 3. sept kl. 18:00
- HamingjuSána með Herjólfsgufunni – Fim. 4. sept kl. 17:00 – 19:00
- HamingjuPrjónakaffi á Ægir 220 – Sun. 7. sept. kl. 10:00 – 14:00
- HamingjuSveppaganga með Helenu Mörtu – Mán. 8. sept. kl. 18:00
- Hamingjuhlaup – 10 kílómetrarnir hans Krissa – Þri. 9. sept. kl. 17:30
- HamingjuZumba með Síkátu Zúmbínunum – Fim. 11. sept. kl. 17:30
- HamingjuríktHjónaband með Soffíu Bæringsdóttur – Mán. 15. sept kl. 20:00
- HamingjuSjóbað með Glaðari þú – Fös. 19. sept. kl. 17:30
- HamingjuMiniMelodica í Hellisgerði – Lau. 27. sept. kl. 17:00
- HamingjuBallett í Suðurbæjarlaug – Mán. 29. sept. kl. 18:00
- HamingjuSvefn & slökun með Betri svefn og SheSleep – Þri. 30. sept. kl. 17:30
Við hvetjum öll til að standið upp, mæta með bros á vör og hitta hamingjuna í Hafnarfirði nú í september.