Opið samtal – Viðtal við Valdimar á Thorsplani
Valdimar Víðisson bæjarstjóri verður með opið samtal í öðru glerhýsanna á Thorsplani mánudaginn 27. október milli kl. 12-14.
Samtal við Valdimar á Thorsplani
„Hlakka til samtalsins um hvað eina sem brennur á Hafnfirðingum. Ábendingar um það sem betur má fara, skipulagsmál, skólamál, umhverfismál eða bara spjall um daginn og veginn,“ segir Valdimar Víðisson bæjarstjóri sem verður með opið spjall á Thorsplani mánudaginn 27. október milli klukkan 12-14.
- Ekki þarf að panta tíma heldur einungis mæta. Ekki þarf að uppfylla aldur eða ræða ákveðið málefni. Öll eru velkomin með það sem er þeim efst í huga.
Valdimar býður þegar íbúum viðtalstíma á þriðjudagsmorgnum. Þá þarf að panta tíma í síma 585 5506. Á mánudag er hins vegar tækifæri að hitta hann auglitis til auglitis á Thorsplani án þess að panta tíma.
„Ég verð með heitt á könnunni,“ segir hann.