Helgi 5: Raddbandið og Leikhópurinn Lotta í Jólaþorpinu okkar
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Fimmta helgin ævintýri líkust
Já, helgin verður gullfalleg í Jólaþorpinu okkar. Þetta fimmta skipti verður með sína töfra og frábæra gesti. Raddbandið reddar jólunum í kvöld, Leikhópurinn Lotta sýnir kl. 16 á laugardag og Kór Öldutúnsskóla, afmæliskórinn sjálfur, verður á sviði á sunnudag. Við hlökkum til að sjá ykkur.
Kíkjum á upplifnunarhúsin, glerhýsin á Thorsplani:
- Föstudag: Trefjar verða með eldstæðin sín
- Laugardag: Kjötkompaní bíður gestum og gangandi uppá gómsætt jólasmakk, nýbakað hreindýrapaté og aðra ljúffenga forrétti á hátíðarborðið.
- Sunnudag: Trefjar aftur
- Alla helgina: Síminn verður í Jólaþorpinu í Hjarta Hafnarfjarðar nú um helgina. Sólon kíkir í heimsókn í Símaskálann og áritar plaköt fyrir börnin á laugardaginn klukkan 15:30. Starfsmenn Símans taka vel á móti þér, innan um vörur merktar Sólon, sniðugum jólagjöfum og almennri gleði.
Ekki missa af gleðinni í Firði þar sem opnunarpartýin halda áfram. Nú verður Lemon með partý, laugardaginn 13. desember frá kl. 13-15. Dansaðu & djúsaðu í tilefni af opnun Lemon í Firði.
Og dagskráin í Jólaþorpinu:
Föstudagur 12. desember
- Kl.18:30 Raddbandið reddar jólunum – Jólin á suðupunkti
Laugardagur 13. desember
- Kl. 11 Jólaball Frikirkjunnar
- Kl. 13 – 14 Jólasveinar á Byggðasafni Hafnarfjarðar
- Kl. 15 – 16 Sykurpúðar á priki við Grýluhellinn hjá Pakkhúsi Byggðasafnsins
- Kl. 16 Leikhópurinn Lotta
Sunnudagur 14. desember
- Kl. 15 – 16 Sykurpúðar á priki við Grýluhellinn hjá Pakkhúsi Byggðasafnsins
- Kl. 15 Kór Öldutúnsskóla og litli kór Öldutúnsskóla
- Kl. 15:30 Mosfellskórinn
- Kl. 16 Ungleikhúsið
En hvað er svo að finna í jólahúsunum í Jólaþorpinu?
- Björk store er með leikföng og fatnað fyrir börn sem eru án allra aukaefna, framleitt með umhverfisvernd í huga.
- Dunda.is býður upp á handverk frá skapandi Íslendingum.
- Blueberry er með gullfallegt hátíðarskraut sem gleður bæði auga og sál.
- Íslensk hollusta, sem fagnar 20 ára afmæli, sýnir vörur úr íslenskum berjum, jurtum og þara.
- Bird.is verður með handtálgaða íslenska fugla – sérhvert stykki unnið af natni og hlýju fyrir unnendur íslenskrar náttúru
- Helga Arnalds verður með handunna keramikmuni – aðventuljós, kertastjaka, bolla og skálar sem sameina fágaða list og notagildi.
- Dýralæknastofa Hafnafjarðar tekur hlýlega á móti öllum dýravinum. Jólagjafir fyrir dýrin, jólamyndabás og hunda-jólalgögg!
Þetta er alls ekki allt, því margt matarkyns verður á boðstólnum:
- Helvítis býður bragðmiklar sultur og nýjungar úr íslensku hráefni.
- Matarkompaní verður með villibráð og sósur.
- A. Hansen bíður uppá allskonar góðgæti, heitt kakó og pylsur!
- Sölvanes og Breiðagerði úr Skagafriði. Lífrænt sauðfjárbú og garðyrkjustöð koma með úrval af gæðavörum allt frá lambakjöti yfir í grænmeti, sultur og sölt!
- Fiskás er með grafinn og reyktann villtan lax, fiskibollur og hrossabjúgu!
- Lángos vagninn með ungverska rétti.
- Sauðfjárbúið býður úrval af kofa- og taðreyktu hangikjöti í ýmsum útfærslum, tvíreyktu hangikjöti, kofa- og taðreyktu bjúgu, gröfnum ærvöðva og vönduðu kjötáleggi.
- Turf House með franskar í nýrri og spennandi útfærslu.
- Í miðjuhúsinu stendur Brikk vaktina en á boðstólnum verður Ali jólapylsa, Brikk jólapungar og Góu heitt súkkulaði svo eitthvað sé nefnt.
Svo allt sætmetið í Jólaþorpinu:
- Churros Wagon býður stökkar og heitar churros.
- Önnu Konditori gleður með dönskum eplaskífum, smákökum og lagtertum.
- Bæjarbakarí með bakstur og jólagómsæti.
- Ísgerð Hafnarfjarðar verður með jóla- og áramóta ísinn klárann fyrir þig! Toblerone- og oreo-ís eða jafnvel sérlagaður piparkökuís Jólaþorpsins!