Svava Júlíusdóttir er 100 ára í dag

Fréttir

Svava Júlíusdóttir fagnar aldarafmæli í dag. Hún ólst upp í Hafnarfirði, bjó fjölskyldunni heimili í Garðabæ en hefur síðasta aldarfjórðunginn búið aftur hér í firðinum fagra.

Svava fagnar aldarafmæli í dag

„Ég hef verið hress, lífsglöð,“ sagði Svava Júlíusdóttir þegar hún var spurð þeirrar klassísku spurningar hvernig hún hefði náð svo háum aldri. Svava er 100 ára í dag. Hún fæddist í Hafnarfirði. 30 desember 1925 og ólst hér upp. Valdimar Víðisson bæjarstjóri færði henni blóm við þessi tímamót. Þau ræddu handbolta og lífið.

Öll sex börnin hennar voru mætt heim til hennar til að fagna öldinni með henni. Þau voru að undirbúa veislu sem haldin er nú seinni partinn.

Ólst upp í Hafnarfirði

Svava ólst upp í Hafnarfirði og gekk hér í skóla. Hún hafði snemma áhuga á íþróttum og æfði handbolta. Hún spilaði með Haukum í mörg ár og varð Íslandsmeistari Hauka í handbolta með sínu liði árið 1945. Svava giftist Ingólfi Egilssyni rakara úr Hafnarfirði, f. 4.12. 1923, d. 2.1. 1988. Þau byggðu sér hús í Garðabæ og bjuggu þar alla sína hjúskapartíð. Svava var húsmóðir og starfsmaður í Frigg hreinlætisvörum.

Börn Svövu og Ingólfs eru: Þórunn f. 1947, Hrefna f. 1949, Sigríður f. 1954, Sigrún f. 1958, Grétar f. 1960 og Júlíus f. 1964. Barnabörn eru 15, barnabarnabörn eru 39 og barnabarnabarnabörnin eru 3. Foreldrar Svövu voru Júlíus Sigurjónsson f. 1901 í Holti, Gerðahreppi, d. 1972, lengst af sjómaður og Hrefna Halldórsdóttir, f. 1894 á Akranesi, d. 1955.

Næstelst í systkinahópi

Svava er næst elst af fjórum alsystkinum og er hún ein eftirlifandi. Þau voru Mundína Soffía Júlíusdóttir f. 21. apríl 1924, d. 15. maí 2019, Sigurjón Steinþór Júlíusson f. 9 október 1929, d. 20. febrúar 1988,  Margrét Júlíusdóttir f. 17. apríl 1935, d. 29 júní 2010. Hún átti eina systur sammæðra, Ragnheiði Guðmundu Sigurgísladóttur f. 1.0 september 1918, d. 20. nóvember 1991.  Svava á eina systur sem er samfeðra. Hún heitir Guðrún Pálína Júlíusdóttir, f. 27. nóvember 1953.

Svava býr nú að Hraunvangi í  Hafnarfirði.

Við hér hjá Hafnarfjarðarbæ óskum þér Svava innilega til hamingju með daginn.

Ábendingagátt