Category: Fréttir

Einstök jólastemning allan desember í athvarfinu Læk

Jólaföndur, jólabakstur, bíókvöld, jólaglögg, konfektgerð, fríðarstundir og Litlu jól  Starfsfólk Lækjar og gestir eru að detta í jólagírinn og ætla í desember að skapa saman einstaka jólastemningu í nýju og glæsilegu húsnæði athvarfsins að Staðarbergi 6. Boðið verður upp á jólaföndur og jólabakstur í hverri viku ásamt einstökum viðburðum á borð við bíókvöld, jólaglögg og […]

Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi

Fimmtudaginn 25. nóvember var alþjóðlegur baráttudagur Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Af því tilefni var hús Hafrannsóknarstofnunar í Hafnarfirði, Harpa, Stjórnarráð Íslands, Gróttuviti auk fleiri bygginga lýstar upp í appelsínugulum lit, sem er táknrænn fyrir von og bjarta framtíð kvenna og stúlkna án ofbeldis.  Átakið, sem lýkur 10. desember á alþjóðadegi mannréttinda, er drifið áfram […]

Fræðslusjóður í Flensborg – opið fyrir umsóknir

Opið er fyrir umsóknir um styrk úr Fræðslusjóði Jóns Þórarinssonar. Allir þeir sem lokið hafa fullnaðarprófi frá Flensborgarskólanum og eru í framhaldsnámi geta sótt um styrk. Umsóknir verða að berast rafrænt á netfangið erla@flensborg.is, eigi síðar en á miðnætti föstudaginn 3. desember 2021. Umsóknin skal merkt Fræðslusjóður Jóns Þórarinssonar. Umsókn þarf að fylgja staðfest gögn […]

Jólaþorpið í Hafnarfirði opnar um helgina

Þú finnur jólaandann í Hafnarfirði

Litlu jólahúsin á Thorsplani fyllast af lífi, vörum og varningi strax á morgun Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opnað á morgun kl. 17, fyrsta föstudag í aðventu, og verður opið alla laugardaga og sunnudaga á aðventunni auk opnunar á Þorláksmessukvöld. Ljósin verða tendruð á jólatrénu á miðju Thorsplani fyrr um daginn í fámenni og er jólatréð […]

Þú finnur jólaandann í jólabænum Hafnarfirði!

Komdu og njóttu aðventunnar í jólabænum! Jólablað Hafnarfjarðar er þessa dagana að detta inn um lúgur Hafnfirðinga og vina Hafnarfjarðar í Reykjavík, Garðabæ og Kópavogi. Jólablaðið hefur þann eina og sanna tilgang að kynna jólabæinn Hafnarfjörð fyrir öllum áhugasömum, fyrir gestum og gangandi og varpa ljósi á þann hlýleika og fjölbreytileika sem býr með fólkinu […]

Njótum aðventunnar í hlýlega og heillandi jólabænum

Aðventukveðja frá bæjarstjóra Hafnarfjarðar birðist í jólablaði Hafnarfjarðar 2021 sem gefið er út þriðja árið í röð og dreift í hús í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og hluta Reykjavíkur.  Aðventukveðja frá bæjarstjóra Hafnarfjarðar —————— Njótum aðventunnar í Hafnarfirði – í hlýlega og heillandi jólabænum  Jólaljósin mild og fögur eru farin að lýsa upp tilveruna í Hafnarfirði […]

Vilt þú verða hluti af samfélaginu á St. Jó?

Lífsgæðasetur St. Jó hýsir fjölbreytta og lifandi starfsemi á sviði heilsu og sköpunar Lífsgæðasetrið er samfélag einstaklinga og fyrirtækja sem eiga það sameiginlegt að auka lífsgæði fólks með forvörnum, heilsurækt, ráðgjöf, fræðslu og sköpun. Lífsgæðasetur St. Jó hýsir í dag fjölbreytta og lifandi starfsemi 17 aðila á sviði heilsu og sköpunar og í byrjun árs […]

Endurbætur á opnum leikvöllum

Í Hafnarfirði eru fjölmargir og fjölbreyttir leik- og sparkvellir og á hverju ári er unnið að viðhaldi og endurnýjun þeirra út frá ákveðinni forgangsröðun. Síðastliðnar vikur hefur m.a. verið unnið að endurbótum á leikvelli milli Álfholts og Eyrarholts og á Akurvöllum.  Á leikvelli á Akurvöllum var kofa og öðrum leiktækjum skipt út fyrir ný leiktæki, […]

Töfrar félagsmiðstöðva og ungmennahúsa

Vissir þú að í Hafnarfirði eru starfræktar 9 félagsmiðstöðvar og 2 ungmennahús? Félagsmiðstöðva- og ungmennahúsavikan er haldin hátíðleg dagana 15.-19. nóvember. Vikan hefur það að markmiði að varpa ljósi á mikilvægi og virði þessa vettvangs fyrir börn og ungmenni með hvatningu um að sem flestir (foreldrar, forráðamenn, systkini, vinir og aðrir aðstandendur) kynni sér starfsemi […]

Fjöldatakmarkanir og átak í örvunarbólusetningum

COVID-19: Hertar aðgerðir, 50 manna fjöldatakmarkanir – stórátak í örvunarbólusetningum Heilbrigðisráðherra hefur í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis ákveðið að herða til muna sóttvarnaaðgerðir til að sporna við hraðri útbreiðslu Covid-19. Aðgerðirnar taka gildi á miðnætti. Almennar fjöldatakmarkanir verða 50 manns en með notkun hraðprófa verður heimilt að efna til viðburða með að hámarki 500 manns […]