Sumarstörf í boði Posted apríl 4, 2016 by avista Hafnarfjarðarbær leitar eftir duglegum og öflugum einstaklingum til starfa í sumar. Til umsóknar eru störf flokkstjóra, leiðbeinenda og aðstoðarleiðbeinenda á íþrótta- og leikjanámskeiðum og í skólagörðum, störf í umhverfis- og garðyrkjuflokkum. Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi eigi lögheimili í Hafnarfirði og eru laun samkvæmt kjarasamningi Hafnarfjarðarbæjar og viðkomandi stéttarfélags. Lágmarksaldur umsækjenda í eftirfarandi störf er […]
SSH 40 ára í dag Posted apríl 4, 2016 by avista Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, SSH, eru 40 ára í dag. Samtökin voru stofnuð í Hlégarði, Mosfellshreppi, 4. apríl 1976. Stofnaðilar voru sveitarfélögin Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Seltjarnarnes, Mosfellshreppur, Bessastaðahreppur og Kjalarneshreppur. Megintilgangur með stofnun SSH var að skapa vettvang fyrir samstarf um skipulag á höfuðborgarsvæðinu og strax á stofnfundi var rætt um stofnun þróunarstofu, (sem varð […]
Áfram Hafnarfjörður! Posted apríl 1, 2016 by avista Í kvöld keppa Hafnarfjörður og Reykjavík í Útsvari. Við sendum þeim Guðlaugu Kristjánsdóttur, Kristbirni Gunnarssyni og Karli Guðmundssyni okkar bestu strauma með von um áframhaldandi sigurgöngu. Liðið mætti Akureyri í janúar þar sem það fór með sigur úr býtum. Allir áhugasamir geta mætt í sjónvarpssal til að horfa á spurningakeppnina í beinni útsendingu og hvatt hópinn […]
Deiliskipulagsbreyting – tillögur Posted apríl 1, 2016 by avista Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Einivalla 1-3, Vellir 3. Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 8.mars.2016 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðar að Einivöllum 1-3 í samræmi við 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að íbúðum er fjölgað um tvær, nýtingarhlutfall lóðar verður allt að 0,6 án kjallara, byggingarreitir […]
Blár dagur í Hafnarfirði Posted apríl 1, 2016 by avista BLÁR APRÍL – lífið er blátt á mismunandi hátt! Snillingar á öllum aldri í Setbergsskóla klæddust bláu í dag til vitundarvakningar um málefni barna með einhverfu auk þess að vinna með staðreyndir um einhverfu sem settar hafa verið fram. Nemendur og kennarar í grunnskólum og leikskólum Hafnarfjarðar fögnuðu fjölbreytileikanum með því að mæta í bláu í […]
Stefán Gunnlaugsson Posted mars 31, 2016 by avista Stefán Gunnlaugsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði og alþingismaður, andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn 23. mars, níræður að aldri. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag. Stefán var bæjarstjóri í Hafnarfirði 1954-1962, bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar 1950- 1954 og bæjarfulltrúi 1970- 1974. Þá var hann landskjörinn alþingismaður fyrir Alþýðuflokkinn 1971-1974. Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar sendir fjölskyldu […]
Lokuð vegna sundmóts Posted mars 31, 2016 by avista Ásvallalaug verður lokuð laugardaginn 2. apríl og sunnudaginn 3. apríl til kl. 14 vegna Actavismóts í sundi. Sundlaugin verður opin fyrir almenning frá kl. 14 – 17 á sunnudeginum en alveg lokuð á laugardeginum. Actavismótið er opið sundmót fyrir öll félög og sundmenn þar sem keppt er í aldursflokkum og opnum flokkum. Við hvetjum íbúa […]
Þinn staður – okkar bær Posted mars 30, 2016 by avista Mars er tileinkaður hönnun og skipulagi í Hafnarfirði. Vinnustofan „Þinn staður – okkar bær“ var opnuð í Hafnarborg miðvikudaginn 9. mars og stendur hún yfir til 3. apríl. Þar eru til sýnis þær hugmyndir og sviðsmyndir sem lagðar hafa verið til í skipulagi Hafnarfjarðarbæjar til framtíðar m.a. í tengslum við skýrslu um þéttingu byggðar og Flensborgarhöfn Hafnarfjörður hversdagsins […]
15% launahækkun í Vinnuskóla Posted mars 30, 2016 by avista Hækkun á launum 14-16 ára í Vinnuskóla Hafnarfjarðar sumarið 2016 nemur 15%. Launin í Vinnuskólanum eru því orðin sambærilegri við það sem í boði er fyrir aldurshópana fyrir svipuð störf innan annarra sveitarfélaga. Störf sem eru samfélaginu mjög mikilvæg. Í fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2016 voru heildarframlög til Vinnuskóla Hafnarfjarðar hækkuð úr 158 milljónum króna […]
Vistvæn prentþjónusta Posted mars 29, 2016 by avista Hafnarfjarðarbær leggur áherslu á ábyrga notkun á pappír fyrir stofnanir bæjarins. Ein af þeim leiðum sem bærinn notar til þess er Rent A Prent (RAP) prentþjónusta frá Nýherja. Þjónustan tryggir meðal annars aukið öryggi og yfirsýn á meðferð gagna. Þá dregur auðkenni á prentverki verulega úr sóun á pappír og prentun. Umhverfismál eru Hafnarfjarðarbæ mjög […]