Category: Fréttir

Með rísandi sól

Þriðjudaginn 7. apríl kl. 12 kemur bassasöngvarinn og Hafnfirðingurinn Sigurður Skagfjörð Steingrímsson fram á hádegistónleikum í Hafnarborg ásamt Antóníu Hevesi píanóleikara. Á tónleikunum sem bera nafnið Með rísandi sól mun Sigurður flytja íslensk sönglög eftir Sigvalda Kaldalóns og Sveinbjörn Sveinbjörnsson en einnig Ol’ Man River úr söngleiknum Showboat og Als Büblein klein, aríu úr óperunni Die lustige Weiber von Windsor eftir […]

Hafnarfjörður í Útsvari í kvöld

Í kvöld keppa Hafnarfjörður og Fljótsdalshérað í  spurningarkeppninni Útsvari . Við sendum þeim Guðlaugu, Kristbirni og Karli að sjálfssögðu góða strauma og þeir sem vilja geta mætt í sjónvarpssal til að fylgjast með og hvetja þau til dáða. Lið okkar er skipað þeim Guðlaugu Kristjánsdóttur, Kristbirni Gunnarssyni og Karli Guðmundssyni. Áfram Hafnarfjörður

Sumarstörf hjá Hafnarfjarðarbæ 2015 – umsóknarfrestur er til 8.apríl

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða starfsfólk til sumarstarfa. Eftirfarandi störf eru í boði: Flokksstjórar í Vinnuskóla Leiðbeinendur á íþrótta- og leikjanámskeiðum Leiðbeinendur í skólagörðum Leiðbeinendur á gæsluvöllum Flokkstjórar í sérhópum Lágmarksaldur umsækjenda um þessi störf er 21 ár (fæddir 1994) Í fegrunarflokki (blómaflokki) Í sláttuflokki Í viðhaldsflokki Aðstoðarleiðbeinendur á íþrótta- og leikjanámskeiðum Aðstoðarleiðbeinendur í skólagörðum […]

Menn

Sýningin MENN beinir sjónum að stöðu karla við upphaf 21. aldar og þeim breytingum sem orðið hafa á högum þeirra í ljósi breyttrar stöðu kvenna. Á sýningunni verða sýnd verk eftir fjóra karllistamenn í fremstu röð, þá Curver Thoroddsen, Finn Arnar Arnarson, Hlyn Hallsson og Kristinn G. Harðarson. Verkin sem valin hafa verið til sýningar eru unnin […]

Hljóðön – …þangað til…

Sunnudaginn 29. mars kl. 20 verða fjórðu og síðustu tónleikar vetrarins í tónleikaröðinni Hljóðön haldnir í Hafnarborg. Tónleikarnir bera yfirskriftina …þangað til… og eru það Gunnlaugur Björnsson, gítarleikari og Hafdís Vigfúsdóttir, flautuleikari sem koma fram. Þau munu leika saman tvö verk og einnig flytja nokkur sólóverk við undirleik rafhljóða. Efnisskráin er samansett af verkum eftir […]

Búið að leysa húsnæðismál Áslandsskóla

Fræðsluráði Hafnarfjarðar var í morgun kynnt niðurstaða sem fengist hefur í húsnæðismálum Áslandsskóla í samráði við skólastjórnendur og foreldra barna í skólanum. Samkvæmt henni er nægt rými í núverandi húsnæði skólans fyrir þann fjölda nemenda sem spár um íbúaþróun gefa til kynna að verði á komandi árum. Niðurstaðan leysir því húsnæðismál skólans hvað fjölda kennslustofa varðar til […]

Fjölgreindarleikar í Setbergsskóla 18. – 20. mars

Þessa daga vinna nemendur saman að fjölbreyttum verkefnum í aldursblönduðum  hópum. Þau ganga á milli stöðva þar sem fjölbreytt verkefni eru lögð fyrir. Má þar nefna: keðjulangstökk, skák, sápukúlu og vísindastöð, kimsleik, dans, söng, hnýtingar, fallegasta orðið, landafræði, mósaík, lífsleikni og jafnvægislistir. Flest verkefnin reyna á að börnin vinni saman og styðji við hvert annað. […]

Hvað finnst þér ?

Starfshópur  um endurskoðun frístundaheimila, frístundastyrkja og fyrirkomulags niðurgreiðslna og gjalda hefur ásamt starfsmönnum tómstundaskrifstofu unnið að samþykkt um starfsemi frístundaheimila. Sú samþykkt tengist  fjölmörgum aðilum í Hafnarfirði og því er það mikilvægt að fá umsögn frá sem flestum aðilum. Í dag er engin slík samþykkt til. Frítími barna og fullorðinna er dýrmætur og í vaxandi […]

Kynning á heilsueflandi skóla

Í dag var haldinn kynningarfundur um heilsueflandi leik- og grunnskóla fyrir stjórnendur í leik- og grunnskólum bæjarins í tilefni þess að Hafnarfjörður hefur gert samning um að gerast heilsueflandi samfélag. Fundurinn var haldinn í Hraunvallaskóla þar sem nálægt 30 manns tóku þátt í fundinum. Á fundinum kynntu þrír skólar, Flensborgarskólinn, Hraunvallaskóli og Hvaleyrarskóli, hvernig þeir […]

Markaðsstofa Hafnarfjarðar

Þriðjudaginn 17.mars kl. 17.15 verður haldinn umræðufundur í Hafnarborg þar sem rætt verður um starfssemi Markaðsstofu Hafnarfjarðar sem stofnuð verður á næstu vikum. Markaðsstofan mun leggja áherslu á að gera Hafnarfjörð að öflugum valkosti fyrir fólk og fyrirtæki til búsetu, atvinnu og afþreyingar. Fundarstjóri – Helgi Ásgeir Harðarson Dagskrá fundarins; Inngangur – Pétur Óskarsson Markaðsstofa […]