Þetta er samvinnuverkefni Öldutúnsskóla, Vatnsendaskóla, Hagaborgar og Gloria Fuertes sem er skóli á Spáni. Lykilorð verkefnisins eru Vinátta – Sköpun – Endurnýting Markmið þess er að nemendur öðlist aukna samkennd og gleði við það að skapa fallegt handverk og gefa af sér um leið. Öðlist skilning á mikilvægi endurnýtingar og læri um mismunandi efnivið. […]
Flokkur: Fréttir
Tilkynning vegna slæms veðurs
Íbúar Hafnarfjarðar eru hvattir til að fylgjast með veðri á morgun þriðjudaginn 1. desember. Einnig eru íbúar hvattir til að fara varlega og ekki vera á ferðinni að óþörfu meðan versta veðrið gengur yfir. Íbúar eru beðnir um að hreinsa vel frá sorpílátum og má búast við að sorphirða riðlist aðeins vegna veðurs.
Syngjandi jól á laugardaginn
Syngjandi jól, árleg kórahátíð hafnfirskra kóra á aðventu, verður haldin í Hafnarborg laugardaginn 5. desember nk. Hátíðin er í nánum tengslum við Jólaþorpið sem er opið á sama tíma við alla Strandgötuna. Dagskrá Syngjandi jóla 2015 er sem hér segir: 09:20 Leikskólinn Norðurberg 09:40 Kór Setbergsskóla 10:00 Leikskólinn Hvammur 10:20 Leikskólinn Álfasteinn 10:40 Leikskólinn Stekkjarás […]
Ljósin tendruð á tré á Thorsplani
Jóladagskrá Bókasafns Hafnarfjarðar
Undirritun samninga við sveitarfélög um móttöku flóttafólks
Undirritun samninga við sveitarfélög um móttöku flóttafólks Félags- og húsnæðismálaráðherra og bæjarstjórar Hafnarfjarðarkaupstaðar, Akureyrarkaupstaðar og Kópavogsbæjar undirrituðu í dag samninga um móttöku 55 sýrlenskra flóttamanna sem væntanlegir eru til landsins í næsta mánuði. Undirbúningur að móttöku flóttafólksins hefur staðið yfir um nokkurt skeið í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNCHR). Hópurinn samanstendur af tíu fjölskyldum; […]
Bæjarstjórnarfundur 25. nóvember 2015
Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 25.nóvember 2015 kl 16:00. Hér er hægt að nálgast dagskrá bæjarstjórnarfundarins. Bæjarbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum hér á vefnum.
Kór Öldutúnsskóla 50 ára
Kór Öldutúnsskóla hélt upp á afmælið sitt með pompi og prakt í gær, sunnudag í skólanum okkar enda 50 ár liðin frá stofnun kórsins. Skólastjóri Öldutúnsskóla, Valdimar Víðisson, flutti ávarp þar sem hann lýsti mikilvægi þess að hafa svona öflugan og góðan kór í skólanum. Hann þakkaði Agli Friðleifssyni stofnanda og fyrrum kórstjóra og núverandi […]
Skarðshlíð breytt skipulag
Kynningar- og upplýsingafundur á vinnu við breytt deiliskipulag Skarðshlíðar verður haldinn fimmtudaginn 26. nóvember kl. 17:15 í Hafnarborg, Strandgötu 34 Hafnarfirði. Fólk er boðið velkomið á upplýsingafund um tillögu að breyttu deiliskipulagi Skarðshlíðar. Á fundinum verður farið yfir tillöguna, samgöngu- og umferðarmál. Skipulagsfulltrúinn í Hafnarfirði.
Tilkynning frá Hafnarfjarðarbæ
Tilkynning frá Hafnarfjarðarbæ vegna úrskurðar Persónuverndar í máli 2015/241 (miðlun persónuupplýsinga frá Vodafone til Hafnarfjarðarbæjar og vinnsla á þeim) Niðurstaða Persónuverndar var sú að Hafnarfjarðarbær hefði haft lögmæta hagsmuni af því að kalla eftir upplýsingum frá Vodafone í umrætt sinn vegna rannsóknar meints öryggisbrots í Ráðhúsi Hafnarfjarðarbæjar, og að vinnsla þeirra hefði verið í samræmi […]