Hafnarfjarðarbær hefur ákveðið að taka upp það verklag að innheimta stöðugjöld á gámum, samkvæmt 2.6.1. gr byggingingarreglugerðar nr.112/2012 og reglum um stöðuleyfi sem samþykktar voru í bæjarstjórn Hafnarfjarðar 20. janúar 2016. Gjaldið er til eins árs í senn og er fyrsta gjaldtímabilið frá 1. maí 2016 – 30. apríl 2017. Eitt gjald fyrir allar stærðir af […]
Flokkur: Fréttir
Grunnskólameistarar 2015-2016
Lækjarskóli er sigurvegari í íþróttamóti grunnskóla Hafnarfjarðar skólaárið 2015-2016. Mótið er haldið árlega og eru það 9. bekkingar grunnskólanna sem keppa fyrir hönd skólanna ár hvert. Keppnin var haldin á Ásvöllum í ár en skipst er á að halda keppnina á Ásvöllum og í Kaplakrika. Sömuleiðis er örlítið mismunandi eftir keppnisstöðum í hvaða íþróttagreinum er […]
Bæjarstjórnarfundur 11. maí
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 11. maí nk. og hefst fundurinn kl. 14:00 í Hafnarborg, Strandgötu 34. Hér er hægt að nálgast dagskrá bæjarstjórnarfundarins. Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu. Útsending hefst kl 14:00.
Útboð – matur fyrir mötuneyti
ÚTBOÐ á framleiðslu á mat fyrir skólamötuneyti Innkaupadeild Hafnarfjarðarbæjar óskar eftir tilboðum í framleiðslu á mat fyrir leik- og grunnskóla í bæjarins. Þjónustuverkefnið felst í því að framleiða matinn og afhenda á tilteknum tíma í viðkomandi leik- og grunnskólum og framreiða hann ásamt samantekt að máltíð lokinni. Samningstími er 4 ár með ákvæðum að hægt verði að […]
Forskráning í skólagarða
Í sumar eiga börn á aldrinum 7 – 12 ára (fædd 2004-2009) forgang í að skrá sig í skólagarða Hafnarfjarðarbæjar. Skráning hófst á Sumardaginn fyrsta og lýkur 14. maí. Eftir þann tíma gefst öllum öðrum sem hafa lögheimili í Hafnarfirði kost á að leigja sér garð. Skólagarðarnir eru á eftirfarandi stöðum: Á Víðistöðum s. 664-5769 […]
Hornfirðingar í heimsókn
Á síðasta ári kom upp sú hugmynd hjá fulltrúum í Ungmennaráði Hafnarfjarðar að bjóða öðru ungmennaráði í heimsókn. Fyrst voru uppi umræður um að bjóða ungmennaráði í nærliggjandi sveitarfélagi í heimsókn með það fyrir augum að kynnast störfum og starfsaðferðum hjá öðru ungmennaráði. Á meðan á þessum hugleiðingum stóð leitaði Ungmennaráð Hornafjarðar til Ungmennaráðs Hafnarfjarðar. Hornfirðingarnir […]
Sumarstarf – fristund.is
Skráning í sumarstarf á vegum Hafnarfjarðarbæjar er hafin! Skráningin fer fram á Mínum síðum – „leikjanámskeið, skólagarðar og róló“ undir umsóknir í grunnskóla. Á vegum Hafnarfjarðarbæjar er boðið uppá leikjanámskeið fyrir 7 – 9 ára við alla skóla, skólagarða fyrir alla fjölskylduna í Mosahlíð, á Holtinu, Öldugötu, við Víðistaði og á Völlum, tómstund fyrir 10-13 ára og […]
Uppskeruhátíð hreinsunar
Með samhentu samfélagsátaki í hreinsun þá verður Hafnarfjörður ofurhreinn á stuttum tíma. Fimmtudaginn 12. maí eru starfsmenn fyrirtækja og stofnana ásamt nemendum og kennurum allra skólastiga í Hafnarfirði hvattir til að bretta upp ermarnar, skella sér í gúmmískóna, setja upp hanska og drífa sig út í ruslatínslu og hreinsun. Framlag hvers og eins skiptir máli. […]
Lokað vegna sundmóts og 1. maí
Ásvallalaug verður lokuð föstudaginn 29. apríl frá kl. 16:30 og allan laugardaginn 30. apríl vegna sundmóts. Suðurbæjarlaug verður opin fyrir almenning frá kl. 8 – 18 á morgun laugardag en báðar laugar; Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug verða lokaðar sunnudaginn 1. maí á alþjóðlegum frídegi verkafólks og baráttudegi verkalýðshreyfingarinnar.
Czy chcesz hodować swoje własne warzywa?
Czy chcesz hodować swoje własne warzywa? Gmina Hafnarfjörður oferuje swoim mieszkańcom wynajem działek uprawnych przy Vatnshlíð, ul. Kaldárselsvegur. Do wynajęcia jest 125 działek o wielkości około 40 m2 każda. Osoby, które wynajmowały działki w ubiegłym roku, mają pierwszeństwo do tych samych działek w roku bieżącym pod warunkiem uiszczenia opłaty przed 1 maja br. Opłata za każdą […]