Bæjarstjórn Hafnarfjarðar gerir að tillögu sinni að formlegar samningaviðræður hefjist við Fasteignir ríkisins um kaup bæjarins á eignarhlut ríkisins í St. Jósefsspítala. Síðustu misseri hafa viðræður átt sér stað milli Hafnarfjarðarbæjar og Fjármálaráðuneytisins um framtíð bygginga St. Jósefsspítala en fasteignirnar voru auglýstar til sölu á síðasta ári. Meðal annars hafa viðræður milli bæjarins og ríkisins […]
Flokkur: Fréttir
Bæjarstjórnarfundur 20. janúar
Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 20. janúar 2016 kl 16:00. Hér er hægt að nálgast dagskrá bæjarstjórnarfundarins.
65M til hafnfirskra heimila
Hafnarfjarðarbær niðurgreiddi íþrótta- og tómstundastarf 6-16 ára barna um 64,5 milljónir árið 2015. Ráðstöfun niðurgreiðslustyrkja frá 2012-2015 var kynnt í fræðsluráði í síðustu viku. Í heild nýttu foreldrar 3.050 barna sér frístundastyrk sveitarfélagsins árið 2015. Þar af voru rúmlega 2.500 börn sem fengu niðurgreiðslu fyrir fleira en eitt námskeið. Til þess að námskeið sé niðurgreitt […]
Fleiri bækur á skólabókasöfn
Fræðsluráð hefur samþykkt að leggja fram tillögu til Bæjarstjórnar þess efnis að fjárveiting til bókakaupa í skólum bæjarins og kaupa á föndurvörum verði aukin um 50% auk þess að veita 700.000.- krónum í Bíó- og bókahátíð barnanna sem fram fer nú í febrúar. Þetta er gert til að styðja frekar við læsisverkefnið sem í gangi […]
Landsleikur í lestri
Grunnskólar í Hafnarfirði setja sér sín markmið í lestri fyrir hvert skólaár til ársins 2020 sem tala saman við árangursmarkmið sveitarfélagsins í heild sinni. Markmiðasetningin er liður í því að bæta námsárangur innan sveitarfélagsins og efla þannig læsi, virkni og námsáhuga á öllum námssviðum og námsgreinum. Unnið er að margþættum verkefnum bæði aðlöguðum verkefnum innan […]
Hafnarfjörður í Útsvari
Í kvöld keppa Hafnarfjörður og Akureyri í spurningakeppninni Útsvari . Útsvarsteymi sveitarfélagsins í ár er hið sama og keppti fyrir hönd bæjarins í fyrra með mjög góðum árangri. Við sendum þeim Guðlaugu Kristjánsdóttur, Kristbirni Gunnarssyni og Karli Guðmundssyni okkar bestu strauma. Allir áhugasamir geta mætt í sjónvarpssal til að horfa á spurningakeppnina í beinni útsendingu […]
Hönnun og ráðgjöf
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í hönnun og ráðgjöf vegna húss og lóðar fyrirhugaðs Hjúkrunarheimilis á Sólvangi. Stærð byggingar er áætluð 3.900 fermetrar og lóð um 5.000 fermetrar, einnig eiga bjóðendur að tengja nýbyggingu við núverandi hjúkrunarheimili. Viðauki 1 hefur verið sendur út. Útboðsgögn verða afhent hjá Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, Hafnarfirði. Tilboðum skal skila á Norðurhellu […]
Heilahristingur
Homework assistance at the library. Volunteers help students with their homework! Pomoc w odrabianiu prac domowych. Wolontariusze pomagają uczniom w odrabianiu prac domowych.
Fyrirtæki vilja framkvæmdir
Mikil samstaða er meðal fyrirtækja á Hellnahrauni og Selhrauni í Hafnarfirði hvað varðar bætt öryggi og þjónustu á svæðinu. Í kringum 20 aðilar mættu á umræðufund fyrirtækjanna með bæjaryfirvöldum á dögunum þar sem nokkur mál voru rædd varðandi mikilvægar framkvæmdir í þágu öryggis auk óska um betri þjónustu í snjómokstri og samgöngum. Iðnaðarsvæðið þykir eitt […]
Ályktun um umferðaröryggi
Umhverfis- og framkvæmdaráð Hafnarfjarðarbæjar tók til umræðu á fundi sínum í dag umferðaröryggi á gatnamótum Reykjanesbrautar og Rauðhellu/Krýsuvíkurvegar. Bókun sem lögð var fyrir fundinn byggir m.a. á áframhaldandi athugasemdum og ákalli fyrirtækja á Hellnahrauni og Selhrauni sem fram komu á umræðufundi sem boðaður var af fyrirtækjunum á svæðinu í síðustu viku. Eftirfarandi bókun var samþykkt […]