Vodafone hlutskarpast í útboði

Fréttir

Hafnarfjarðarbær og Vodafone hafa undirritað samning til tveggja ára um síma- og fjarskiptaþjónustu fyrir bæinn. Með útboði á þjónustunni er Hafnarfjarðarbær að ná fram c.a. 25-30% hagræðingu

Hafnarfjarðarbær og Vodafone hafa undirritað samning til tveggja ára um síma- og fjarskiptaþjónustu fyrir bæinn sem tekur til allra vöruflokka þ.e. GSM, fastlínu og gagnaflutnings. Með útboði á þjónustunni er Hafnarfjarðarbær að ná fram c.a. 25-30% hagræðingu en heildarkostnaður þessara útboðsþátta hefur verið í kringum 38-40 milljónir króna á ári.

Nýlega var síma- og fjarskiptaþjónusta Hafnarfjarðarbæjar boðin út. Var það fjarskiptafyrirtækið Vodafone sem bauð lægsta heildarútboðsverðið samkvæmt tilboðsskrá útboðsgagna en leyfilegt var einnig að bjóða í hvern vöruflokk fyrir sig. Útboðslýsing var send til allra aðila á fjarskiptamarkaði sem hafa rammasamning við Ríkiskaup. Útboðið mun líklega skila sveitarfélaginu hagræðingu upp á rúmlega 10 milljónir króna á ársgrundvelli. Samhliða er útboðið að skila hagræðingu innan vöruflokkanna sem felur m.a. í sér öflugri nettengingar til skóla og stofnana með lægri tilkostnaði. „Við höldum áfram því sem við hjá Hafnarfjarðarbæ höfum verið að gera síðustu mánuði, vegferð sem er að skila okkur mikilli hagræðingu. Við höfum markvisst verið að bjóða út þá þjónustu sem við kaupum að. Það er nauðsynlegt, bæði til að halda okkur á tánum og meðvituðum um gang mála á markaði og ekki síður til að halda þjónustuveitanda á tánum þannig að tryggt sé að við séum að fá 100% þjónustu í takt við auknar þarfir og breytingar í starfsumhverfi. Við höldum áfram að róa í þessa átt og það til hagsbóta fyrir alla, starfsmenn, íbúa og fyrirtæki“ segir Haraldur L. Haraldsson við undirritun samnings í gær.

Ábendingagátt