Flokkur: Fréttir

Bæjarstjórn með í landsleik

Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar hefur ákveðið að skrá sig til leiks í Landsleik í lestri og þar með skrá lestur sinn á bókum, skýrslum og greinargerðum næsta mánuðinn. Það sem meira er þá ætlar bæjarstjórnin að virkja fjölskyldur sínar með í þetta verðuga læsisverkefni. Á sjálfan Bóndadaginn fór af stað landsátakið – Landsleikur í lestri – þar […]

Guðríður Ósk Elíasdóttir

Við upphaf bæjarstjórnarfundar á miðvikudaginn var Guðríðar Óskar Elíasdóttur minnst en hún lést nýverið. Guðríður var verkalýðsforkólfur og tók virkan þátt í félagsmálum. Hún var í forystu Verkakvennafélagsins Framtíðarinnar í Hafnarfirði og fyrrverandi varaforseti ASÍ. Guðrún Ósk var máttarstólpi í verkalýðshreyfingunni og gegndi þar margvíslegu hlutverki. Hún var varabæjarfulltrúi frá árinu 1974 og bæjarfulltrúi á […]

Hafnfirsku flóttafjölskyldurnar

Fyrsti hópur sýrlenska flóttafólksins lenti á Keflavíkurflugvelli síðdegis í fyrradag eftir langt ferðalag. Flóttafjölskyldurnar þrjár, sem koma til með að setjast að í Hafnarfirði, voru ekki í hópnum að þessu sinni. Tvær þeirra sáu sér ekki fært að koma  og einhver bið verður á þeirri þriðju vegna fjölskylduaðstæðna. Val á nýjum fjölskyldum stendur yfir. Þess […]

Gjald undir meðalverði

Verðlagseftirlit ASÍ er þessa dagana að kanna verðlagsbreytingar gjaldskráa sveitarfélaganna. Dagvistunargjald frístundaheimila Hafnarfjarðarbæjar er með því lægra sem gerist yfir heildina, einungis 3.146.- kr frá lægsta gjaldi og 8.669.- kr. frá því hæsta. Meðalverð dagvistunar heilt yfir er 19.402.- kr. á meðan verð Hafnarfjarðarbæjar er 17.311.- kr.  Verðlagseftirlit ASÍ kannaði í upphafi árs breytingar á gjaldskrám […]

Stóra upplestrarkeppnin

Stóra upplestrarkeppnin er í fullum gangi í grunnskólum Hafnarfjarðar þar sem 7. bekkingar skólanna eru í markvissri þjálfun í framsögn og upplestri. Lokahátíð keppninnar fyrir Hafnarfjörð fer fram í Hafnarborg þriðjudaginn 8. mars kl. 17 þar sem tveir fulltrúar hvers grunnskóla taka þátt.   Á lokahátíðinni eru jafnframt kynnt úrslit í smásagnasamkeppni 8.-10. bekkinga og […]

Sýnilegur árangur aðgerða

Á meðan gjaldskrárhækkanir leikskóla eru almennt að eiga sér stað meðal stærstu sveitarfélaga landsins, skv. verðlagseftirliti ASÍ, er Hafnarfjarðarbær eitt fimm sveitarfélaga sem nánast stendur í stað milli ára. Sveitarfélagið var í sjötta sæti árið 2014, á yfirliti ASÍ yfir lægstu leikskólagjöldin, en vermir nú fjórða sætið. Umbætur í rekstri og endurhugsun á ferlum og […]

Rekstur veitingasölu

Óskað er eftir aðila til að taka að sér veitingarekstur í Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar að Strandgötu 34. Kaffistofan býður upp á ýmsa möguleika, er öllum opin en fyrst og fremst hugsuð sem þjónusta við gesti Hafnarborgar. Góð aðstaða til framreiðslu á kaffiveitingum og léttum málsverðum. Opnunartími tengist a.m.k. opnunartíma Hafnarborgar. Einnig velkomið að […]

Nýr stjóri Markaðsstofu

Ása Sigríður Þórisdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri nýrrar Markaðsstofu Hafnarfjarðar. Ása var valin úr hópi um þrjátíu umsækjenda. Ása hefur mikla reynslu af stjórnun verkefna, kynningarmálum, samskiptastjórnun og fræðslumálum en hún hefur síðastliðin fimm ár verið verkefnastjóri fag- og kynningarmála hjá BHM. Þar áður starfaði hún hjá Höfuðborgarstofu við fjölbreytt verkefni á sviði ferðamála. Ása […]

Undirritanir útboðssamninga

Undirskriftir í tengslum við nýja samninga vegna útboða á þjónustuþáttum Hafnarfjarðarbæjar halda áfram. Í síðustu viku var skrifað undir samning við Hópbíla vegna skólaaksturs og ISS vegna ræstinga og heimsendingar á mat til eldri borgara.  Hópur fulltrúa Hópbíla og Hafnarfjarðarbæjar við undirritun samnings um skólaakstur Útboð í ræstingu er að skila sparnaði upp á rúmar […]

Eflandi starf eldri borgara

Mjög metnaðarfullt og heilsueflandi starf er að eiga sér stað innan Félags eldri borga í Hafnarfirði.  Dansleikir eru haldnir mánaðarlega í Hraunseli yfir veturinn auk þess sem eldri borgarar fá tækifæri til að æfa dans tvisvar í viku.  Vikudagskrá félagsins er fjölbreytt og nýtir fjöldi eldri borgara sér m.a. möguleika til innanhússgöngu í Kaplakrika. Alla […]