Undirritun samninga við sveitarfélög um móttöku flóttafólks Félags- og húsnæðismálaráðherra og bæjarstjórar Hafnarfjarðarkaupstaðar, Akureyrarkaupstaðar og Kópavogsbæjar undirrituðu í dag samninga um móttöku 55 sýrlenskra flóttamanna sem væntanlegir eru til landsins í næsta mánuði. Undirbúningur að móttöku flóttafólksins hefur staðið yfir um nokkurt skeið í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNCHR). Hópurinn samanstendur af tíu fjölskyldum; […]
Flokkur: Fréttir
Bæjarstjórnarfundur 25. nóvember 2015
Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 25.nóvember 2015 kl 16:00. Hér er hægt að nálgast dagskrá bæjarstjórnarfundarins. Bæjarbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum hér á vefnum.
Kór Öldutúnsskóla 50 ára
Kór Öldutúnsskóla hélt upp á afmælið sitt með pompi og prakt í gær, sunnudag í skólanum okkar enda 50 ár liðin frá stofnun kórsins. Skólastjóri Öldutúnsskóla, Valdimar Víðisson, flutti ávarp þar sem hann lýsti mikilvægi þess að hafa svona öflugan og góðan kór í skólanum. Hann þakkaði Agli Friðleifssyni stofnanda og fyrrum kórstjóra og núverandi […]
Skarðshlíð breytt skipulag
Kynningar- og upplýsingafundur á vinnu við breytt deiliskipulag Skarðshlíðar verður haldinn fimmtudaginn 26. nóvember kl. 17:15 í Hafnarborg, Strandgötu 34 Hafnarfirði. Fólk er boðið velkomið á upplýsingafund um tillögu að breyttu deiliskipulagi Skarðshlíðar. Á fundinum verður farið yfir tillöguna, samgöngu- og umferðarmál. Skipulagsfulltrúinn í Hafnarfirði.
Tilkynning frá Hafnarfjarðarbæ
Tilkynning frá Hafnarfjarðarbæ vegna úrskurðar Persónuverndar í máli 2015/241 (miðlun persónuupplýsinga frá Vodafone til Hafnarfjarðarbæjar og vinnsla á þeim) Niðurstaða Persónuverndar var sú að Hafnarfjarðarbær hefði haft lögmæta hagsmuni af því að kalla eftir upplýsingum frá Vodafone í umrætt sinn vegna rannsóknar meints öryggisbrots í Ráðhúsi Hafnarfjarðarbæjar, og að vinnsla þeirra hefði verið í samræmi […]
Íbúafundur um fjárhagsáætlun
Hér er hægt að nálgast upptöku af íbúafundi bæjarstjóra 10. nóvember síðastliðinn. Kynning bæjarstjóra – glærur Hér er hægt að horfa á kynningu bæjarstjóra 10.11.2015 (Opnast í nýjum vafraglugga)
Skýrsla um framtíðarnotkun Víðistaðatúns
Nýlega lauk starfshópur um framtíðarnotkun Víðistaðatúns störfum og skilaði af sér skýrslu um þau fjölmörgu tækifæri sem búa í Víðistaðatúnssvæðinu. Í skýrslunni er framkvæmdaáætlun til þriggja ára. Meðal helstu tillagna má nefna: koma upp fleiri leiktækjum setja upp grillaðstöðu fyrir hópa og fjölga þar bekkjum og borðum afmarka svæði fyrir golf/mínígolf sem stýrt verður frá […]
Endurskinsmerki í skammdeginu
Nú er mesta skammdegið og minnum við á að nota endurskinsmerki jafnt börn sem fullorðnir. Í myrkrinu sjáumst við illa og er því notkun endurskinsmerkja bráðnauðsynleg. Til þess að þau séu sem mest sýnileg er best að hafa þau á eftirfarandi stöðum. Fremst á ermum Hangandi meðfram hliðum Á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum
Kynheilbrigði eldri borgara
Félag eldri borgara í Hafnarfirði bauð nýverið upp á fyrirlestur sem ber heitið „Kynheilbrigði eldriborgara“ í opnu húsi í Hraunseli. Fyrirlesari var Sigga Dögg kynfræðingur. Mættir voru margir hressir eldri borgara til að fá fræðslu um ýmis mál er varðar kynheilbrigði og sambönd fólks. Flutningur Siggu Daggar á efninu var frábær og voru gestir mjög […]
Íbúðir óskast til leigu
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að taka á leigu nokkrar íbúðir í sveitarfélaginu. Nánari upplýsingar gefur Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar í síma 585-5500 eða á netfangið hafnarfjordur@hafnarfjordur.is. Óskað er eftir að upplýsingar um íbúðir berist fyrir 1. desember. Fjölskylduþjónusta Hafnarfjarðarbæjar.