Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Stórleikur Íslands og Frakklands í átta liða úrslitum Evrópumótsins verður sýndur á stórum skjá á Thorsplani kl. 19 á sunnudaginn. Kynnir á meðan leik stendur er Bryndís Ásmundsdóttir.
Stórleikur Íslands og Frakklands í átta liða úrslitum Evrópumótsins verður sýndur á stórum skjá á Thorsplani á sunnudaginn. Hafnfirðingar og aðrir nærsveitungar eru hvattir til að mæta á EM-heimavöll Hafnarfjarðar til að hvetja okkar menn áfram og umfram allt gleðjast.
Leikurinn hefst stundvíslega kl. 19 og eru gestir hvattir til að mæta tímanlega, koma sér vel fyrir á Thorsplani og njóta. Það er engin önnur en Bryndís Ásmundsdóttir, söng- og leikkona okkar Hafnfirðinga, sem mun heiðra áhorfendur leiks með nærveru sinni og stýra hvatningu og söng í hléi á viðeigandi tímum á meðan á leik stendur. Búast má við mikilli stemningu á torginu en hvert torgið af fætur öðru hefur bæst við innan sveitarfélaga landsins í takt við velgengni og árangur íslenska landsliðsins. Þjóðin öll hefur síðustu vikur sameinast í gegnum fótboltann, hrifist með og fagnað árangri íslenska liðsins á EM enda um að ræða einstakan viðburð í íslenskri íþróttasögu. Með þessu vilja aðstandendur sýningar á Thorsplani færa fótboltann nær Hafnfirðingum og öðrum gestum og gangandi og gera þeim kleift að labba á „völlinn“, upplifa og njóta.
Sérstakar þakkir fá ISS, Landsbankinn, Trefjar, Hlaðbær-Colas , Fjarðarkaup og Íslenska kaffistofan fyrir að standa að EM-samáhorfinu á Thorsplani í samvinnu við Markaðsstofu Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarbæ. HljóðX sér um uppsetningu á skjánum og tæknilega hlið framkvæmdar.
Sjáumst í bláu á vellinum!
Hvetjum fólk eindregið til að ganga eða hjóla í bæinn og vekjum athygli á því að Strandgata er lokuð frá kl. 18:15 – 21:15.
Útnefning bæjarlistamans Hafnarfjarðar fyrir árið 2026. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til…
Aðsókn á viðburði á Bókasafninu jókst um 81% milli ára. Hátíðin Heimar og himingeimar sprakk út og sóttu 10 þúsund hana.…
Hafnarfjarðarbær hefur fengið 8.185.000 króna styrk frá barna- og menntamálaráðuneytinu til að efla íslenskukunnáttu, sjálfstraust og þátttöku starfsfólks hafnfirskra leikskóla í samfélaginu.
Ráðherra, bæjarstjóri og framkvæmdastjóri Vigdísarholts skáluðu í kakói með rjóma við undirritun á samkomulagi um byggingu og rekstur nýs 108…
Hafnarfjarðarbær hefur samþykkt að veita Brynju leigufélagi stofnframlag til kaupa á 16 íbúðum til úthlutunar fyrir öryrkja. Íbúar í Hafnarfirði…
Gestafjöldi í Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar, jókst um 14% milli ára. Fjölbreytt ár framundan í breyttum miðbæ Hafnarfjarðarbæjar.
Viltu spjalla við verkefnastjóra fjölmenningar hjá Hafnarfjarðarbæ? Koma hugmyndum þínum á framfæri, fá ráð eða ræða málin? Opnir viðtalstímar í…
Tvö námskeið eru í boði í Nýsköpunarsetrinu nú í janúar. Annað Listasmiðja fyrir krakka á aldrinum 9-12 ára. Hitt Skissubókanámskeið…
Strandgötu verður tímabundið lokað vegna viðburðar á Thorsplani milli kl.16:45 og 18:15 þriðjudaginn 6. janúar.
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsverndarsjóði Hafnarfjarðar. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa…